10. febrúar 2010 milli kl. 11:00 og 17:00
Framadagar verða haldnir í 16. sinn í Háskólabíói þann 10. febrúar næstkomandi.
Mörgum er orðið kunnugt um starfssemi Framadaga þar sem mörg af framsæknustu fyrirtækjum landsins koma saman og kynna sína starfssemi fyrir háskólanemum í þeirri von um að ná í framtíðarstarfsskraft. Eitt helsta markmið Framadaga 2010 er að brúa bil háskólanema og atvinnulífs.
Þema ársins verður nýsköpun og ný tækifæri, framundan er mikil uppbygging í atvinnulífinu og er þetta kjörinn vettvangur fyrir ungt fólk sem og þá sem leita nýrra leiða til að nýta sína menntun. Fjölbreytileikinn hefur verið allsráðandi við val á fyrirtækjum sem munu taka þátt á Framadögum 2010 og reynt verður að höfða til sem flestra námsbrauta og starfsmenntunar
Staður: Háskólabíó