Virkjum karla og konur

10. febrúar 2010 milli kl. 08:15 og 17:00

Virkjum karla og konur


Hópstefnumót atvinnulífsins á Nordica 10. febrúar
Fjölbreyttur hópur fólks úr atvinnulífinu mun koma saman á Hótel Nordica þann 10. febrúar næstkomandi. Þá efna Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands, Leiðtoga-Auður, iðnaðarráðuneytið, efnahags- og viðskiptaráðuneyti og Creditinfo til morgunverðarfundar þar sem m.a. verður greint frá því hvaða leiðir viðskiptalífið hyggst fara til að fjölga konum í stjórnum fyrirtækja auk þess sem nýjar tölur Creditinfo um kynjahlutföll í atvinnulífinu verða birtar. Konur og karlar sem koma saman til fundarins greiða aðeins eitt þátttökugjald en til þessa hafa fundir sem fjalla um karla og konur í forystusveit atvinnulífsins einkum verið sóttir af konum.
 

Fundurinn stendur frá kl. 8:15-10:00 en skráning og léttur morgunverður verður í boði frá kl. 8:00.

 

Fundurinn er haldinn til að fylgja eftir samstarfssamningi SA, FKA og VÍ sem undirritaður var 15. maí 2009 um að fjölga konum í forystusveit íslensk atvinnulífs til loka ársins 2013 þannig að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40%. Allir stjórnmálaflokkar sem sæti eiga á Alþingi skrifuðu undir samninginn og veita honum stuðning sinn.

 

Fundurinn Virkjum karla og konur - fjölbreytni í forystu er haldinn í kjölfar tveggja stórra ráðstefna árin 2007 og 2008 sem fóru fram undir yfirskriftinni Virkjum kraft kvenna og Virkjum fjármagn kvenna þar sem lögð var áhersla á mikilvægi þess að auka hlut kvenna í íslensku atvinnulífi án valdboða. Um 800 konur mættu á ráðstefnurnar tvær en karlmenn voru í miklum minnihluta. Nú er kominn tími til að bæta úr því og boðið upp á tvö fyrir einn - aðeins er greitt eitt þátttökugjald fyrir karl og konu sem koma saman til fundarins og leggja þar með sitt af mörkum við að auka fjölbreytni atvinnulífsins.

 

Staður: Hótel Nordica

 
Viðskiptablaðið · Myllusetur ehf · Fiskislóð 22 · 101 Reykjavík · Sími: 511-6622 · vb@vb.is · askrift@vb.is · RSS