11. mars 2010 milli kl. 11:40 og 12:20
Ísafold félag ungs fólks gegn ESB-aðild, í samstarfi við Orator, félag laganema við HÍ boða til málfundar um ungt fólk og Evrópusambandið fimmtudaginn 11. mars næstkomandi í sal 101 á Háskólatorgi kl. 11.40-12.20
Yfirskrift fundarins er „Ungt fólk og ESB - hvað græðum við á aðild?".
Ræðumenn verða þau Maria Elvira Mendez dósent í evrópurétti, Magnús Árni Magnússon aðjúnkt í stjórnmálafræði og Tale Marte Dæhlen formaður Ungdom mot EU í Noregi.
Hvert þeirra mun halda um 10 mínútna erindi. Erindin fjalla um áhrif mögulegrar aðildar Íslands að ESB á ungt fólk með áherslu á menntun, lýðræði, atvinnu/atvinnuleysi og fleiri málefni sem snúa að hagsmunum ungs fólks.
Ræðumenn, sem hafa mismunandi skoðanir á þessum málaflokki, munu í erindum sínum leitast við að svara því hvers vegna eða hvers vegna ekki, ungt fólk ætti að vilja ganga í ESB. Í lok erindanna verða fyrirspurnir leyfðar úr sal.
Fundurinn verður á ensku
Stađur: Háskólatorg - stofa 101