10. mars 2010 milli kl. 12:00 og 13:30
Tæpir tveir áratugir eru liðnir frá því að Eystrasaltsríkin komust úr klóm Sovétríkjanna og öðluðust langþráð sjálfstæði og frelsi. Í erindi sínu á Félagsvísindatorgi ræðir Anda Rožukalne um þær róttæku breytingar sem orðið hafa á starfsumhverfi fjölmiðlafólks í Eystrasaltsríkunum á þessum tíma. Hún fjallar einnig um breytt viðhorf til starfs fjölmiðlafólks og stöðu þess í samfélaginu.
Anda Rožukalne er lektor við Stradins Háskólann í Riga og forstöðumaður fjölmiðladeildar skólans. Hún er menntaður fjölmiðlafræðingur og hefur að auki 15 ára reynslu sem blaðamaður og ritstjóri. Anda hóf feril sinn sem fræðimaður 1998 og hefur kennt við Háskóla Lettlands og Stradins Háskólann í Riga.
Staður: L 201 Sólborg v/Norðurslóð