Tár, bros og hagfræði
Knattspyrnan er ekkert grín. Hún er rannsóknarstofan þar sem hagfræðingar velta fyrir sér raunveruleikanum utan vallar.
Fátt er hagfræði óviðkomandi og er knattspyrnuhagfræði einhver skemmtilegasti útkjálki hennar. Í tuttugu og tveimur ofurlaunuðum tuðruspörkurum sjá sumir tækifæri til að greina mannlega hegðun.
Hagfræðingurinn þýski, Thomas Dohmen, hefur meðal annars sýnt fram á að dómarar veita liðum sem spila á heimavelli án hlaupabrautar oftar vítaspyrnur en liðum sem leika á velli með slíkri braut. (KSÍ hefði mátt íhuga þetta áður en Laugardalsvöllur var endurbyggður.) Sá hinn sami hefur einnig fjallað um það að leikmenn sem spila á heimavelli eru líklegri til að klúðra vítaspyrnum en að heiman.
Dohmen ásamt öðrum, til að mynda spænsku hagfræðingunum Apesteguia og Palacia-Huerta, hafa glætt íþróttina nýju lífi á síðustu árum með því að kafa dýpra í tölfræðina en flestir blaða- og sjónvarpsmenn gera. Í ritum þeirra er ekki kveinað yfir ósamræmi í dómgæslu heldur er athugað hvort um sé að ræða kerfisbundin vandamál sem felast í umhverfi og regluverkinu sem knattspyrnan er spiluð innan.
Hinir tveir síðastnefndu sýndu fram á að einn mikilvægasti hlutinn í vítaspyrnukeppnum er að sigra hlutkestið svo að lið þitt taki fyrstu spyrnuna. Liðin sem hefja leik sigra nefnilega 60 prósent af öllum vítaspyrnukeppnum. Ekki nóg með það, lið sem hefja leik og skora úr sinni fyrstu spyrnu vinna um 67 prósent af öllum einvígum. Seinni spyrnur skipta einnig máli en það virðist hafa mikil áhrif á leikmenn hvort lið þeirra sé marki undir, yfir eða að staðan sé jöfn þegar spyrnan er tekin. Ekki furða að þeir hafi lagt til að vítaspyrnukeppnir séu framkvæmdar í anda tennisreglna. (ABBAABBAAB).
Margt í máli hagfræðinganna bendir til þess að ýmsir þættir á borð við stuðning og pressu á leikmenn og dómara verði þess valdandi að hafa áhrif á hvernig þeir standa sig. Áhrif sem skoða má í víðara samhengi, til að mynda á milli vinnuveitanda og starfsmanna þar sem jákvæður eða neikvæður þrýstingur á starfsfólk getur haft ófyrirséðar afleiðingar.
Knattspyrnan er nefnilega ekkert grín. Nei, hún er rannsóknarstofan þar sem hagfræðingarnir velta því fyrir sér hvernig raunveruleikinn utan vallarins virkar.