Ríkisstyrktur andkapítalismi
Það væri gaman að sjá „listamanninn“ Santiago Sierras lifa af einhverju öðru en framlagi frá hinu opinbera.
Á hverju ári eru skattgreiðendur píndir til þess að greiða fyrir listir og menningu – í gegnum ríkið.
Þrátt fyrir að listir og menning hafi orðið til á undan skattgreiðendum finnst stjórnmálamönnum sjálfsagt mál að taka pening af fólki til þess að útdeila eftir geðþótta í listir og menningu. Sumir virðast þannig halda að ríkið sé betur til þess fallið en einstaklingurinn til þess að skilgreina og velja lista- og menningarviðburði eða starfsemi Þetta kristallaðist auðvitað í tónlistarhúsinu í Reykjavík þar sem stjórnmálamenn í öllum flokkum voru í sama ruglinu. Stjórnmálamenn eru hræddir við að fá listamafíuna upp á móti sér og keppast við að láta allt eftir henni – á kostnað skattgreiðenda að sjálfsögðu.
Listasafn Reykjavíkur er að sjálfsögðu rekið fyrir almannafé. Í byrjun vikunnar auglýsti opinbera listasafnið „gjörning“ eftir spænska „listamanninn“ Santiagos Sierras. Listin í gjörningnum felur það í sér að hinn iðjulausi Spánverji er búinn að útbúa skúlptúr sem mynda stafina NO. Honum er ekið um á vörubílspalli og stillt upp fyrir framan Alþingishúsið, fjármálastofnanir, kauphöllina og fleiri staði. Þessi djúpa list á að lýsa „ádeilu á kapítalískt markaðshagkerfi og efnahagshruni Íslands,“ eins og það er orðað í tilkynningu frá opinbera safninu. Gott og vel. Manninum er að sjálfsögðu heimilt að hafa þessa skrýtnu skoðun og ef hann vill deila á allt sem tengist kapítalísku markaðshagkerfi er honum það einnig frjálst. Einhver þyrfti þó að benda honum á að ríkið er ekki sjálfbært í sjálfu sér og það er bara fyrir markaðsdrifin hagkerfi sem svona „listamenn“ geta stundað sína list – í boði skattgreiðenda. Verra er þó að Listasafn Reykjavíkur skuli bera kostnaðinn af þessari vitleysu. Stofnunin er rekin fyrir opinbert fé og ákveður þarna að hygla daðri við kommúnisma umfram aðrar stjórnmálaskoðanir. Ætlar listasafnið næst að flytja inn – á kostnað skattgreiðenda – einhvern listamann sem deilir á kommúnisma og sósíalisma?
Það væri gaman að sjá Sierras lifa af einhverju öðru en framlagi frá hinu opinbera. Enn skemmtilegra væri að sjá Listasafn Reykjavíkur lifa af einhverju öðru en framlagi frá hinu opinbera.
- Eldri pistlar
-
22.12.11Klikkaður kommúnisti kvaddur
-
02.12.11Engin Palestína?
-
09.11.11Fréttir af andláti sjónvarpsfrétta
-
13.10.11„Átsmartaðir“ þingmenn
-
12.09.1111. sept. 2001 – Tíu árum seinna
-
21.08.11Slitnir strengir Hörpu
-
24.06.11Leiðtogakreppan, V. hluti – Framsóknarflokkurinn
-
23.06.11Leiðtogakreppan, IV. hluti – VG
-
22.06.11Leiðtogakreppan, III. hluti – Sjálfstæðisflokkurinn
-
21.06.11Leiðtogakreppan, II. hluti – Samfylkingin