Kia EV6 var valinn rafbíll ársins 2022 hjá bílatímaritinu Autocar. Þetta er enn ein rósin í hnappagat EV6 sem hefur sankað að sér verðlaunum síðan bíllinn kom á markað á síðasta ári. Hann var m.a. valinn Bíll ársins í Evrópu 2022 fyrir stuttu.

EV6 er einn af fjórtán nýjum EV rafbílum Kia sem fyrirtækið mun hyggst setja á markað fyrir árið 2027. Kia EV6 hefur allt að 528 km drægni á rafhlöðunni og getur hlaðið 10-80% á aðeins átján mínútum. Hvort tveggja er með því besta sem þekkist í rafbílaheiminum.

Autocar, sem er elsta bílatímarit heims, sæmdi einnig Peter Schreyer, forstjóra hjá Kia Motors og yfirhönnuð hjá fyrirtækinu, sérstökum heiðursverðlaunum „Lifetime Achievement Award“ fyrir áratuga starf í þágu bílaiðnaðarins. Schreyer hefur starfað sem yfirhönnuður Kia undanfarin sautján ár og átt stærstan þátt í mikilli velgengni Kia bíla á hönnunarsviðinu.

Þýski bílahönnuðurinn þykir hafa náð afburða árangur í hönnun í bílaiðnaðinum og hefur m.a. hlotið Gullna stýrið á vegum þýsku bílaritinna Bild am Sonntag og AutoBild sem veita verðlaunin sem þykja mjög eftirsótt.

Peter Schreyer var ráðinn sem einn af forstjórum Kia Motors árið 2012 og fyrsti og eini Evrópubúinn sem gegnir starfinu. Hann var áður hönnuður hjá þýsku bílaframleiðendunum Audi og Volkswagen og hannaði m.a. endurnýjuðu VW Bjölluna og Audi TT sportbílinn. Kia Motors hefur átt mikilli velgengni að fagna undanfarin ár og hefur sala á bílum fyrirtækisins margfaldast.