Ítalski bílaframleiðandinn Fiat, sem á meirihluta í Chrysler, hefur framleitt stórskemmtilega auglýsingu sem hluta af innreið bílaframleiðandans til Norður Ameríku.
Þar leikur Fiat 500, sem er einhver fallegasti fólksbíll sem Fiat hefur framleitt, aðhlutverkið.
Fiat 500 var fyrst framleiddur árið 1957 og nýja týpan var sett á markað á 50 ára afmæli bílsins. Viðtökurnar hafa verið afar góðar í Evrópu.
