Veiðihúsið Lundur við Hítará þykir eitt fallegasta veiðihúsið á Íslandi, en Viðskiptablaðið fékk nokkra þaulreynda veiðimenn til að segja frá sínum uppáhaldshúsum. Segja má að tvö hús standi þar upp úr. Annars vegar er það veiðihúsið Lundur við Hítará og hins vegar veiðihúsið við Breiðdalsá.
Bjarni Júlíusson, formaður SVFR, segir sérstaklega fallegt að horfa út um gluggann á Lundi þar sem Breiðin blasir við. „Laxarnir sem þú ætlar að veiða sjást út um gluggann og innandyra er húsið löðrandi í sögu og fegurð,“ segir Bjarni.
„Þó húsið sé orðið meira en hálfrar aldar gamalt og vissulega barn síns tíma þá er það veiðihús með sál!“ Guðmundur Guðjónsson, ritstjóri veiðivefsins Vötn og veiði, tekur í sama streng. „Tvö veiðihús eru í mínum huga skör ofar en önnur, annars vegar við Hítará og hins vegar við Breiðdalsá.“
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum Tölublöð hér að ofan.
