Fréttir af brottkasti á þorski í Noregi

8. febrúar 2010, 15:00 - Strandveiðimenn í Noregi kasta lélegum þorski í hafið frekar en að koma með hann í land segir sjómaður í viðtali við netmiðil norska útvarpsins. Brottkastið er sagt eiga sér stað vegna þess að síld í maga þorsksins skerðir gæði hans og sjómenn fá þá aðeins hálfvirði fyrir þorskinn. Á landstíminu er þorskurinn hafður óslægður í stórum körum án kælingar. Óvenjumikil síld hefur verið í maga hans í vetur og því ber meira á gæðarýrnuninni en áður. Enginn veit hvað meint brottkast er mikið.

Loðnan orðin frystingarhæf á Japan

8. febrúar 2010, 12:00 - ,,Loðnan gengur hratt vestur með suðurströndinni. Fremsti hluti göngunnar er kominn vestur á Eyrarbakkabugt þar sem við erum nú,”  sagði Sigurbergur Hauksson skipstjóri á Berki NK frá Neskaupstað þegar Fiskifréttir slógu á þráðinn til hans skömmu fyrir hádegi í dag.

Sunnudagur

Risasmokkur gerir innrás

7. febrúar 2010, 20:22 - Risasmokkfiskur, oft nefndur Humboldt smokkur, hefur í þúsundatali gengið upp að strönd Kaliforníu í Bandaríkunum að undanförnu. Smokkurinn er talinn veruleg ógn við sjávarútveg á þessum slóðum því hann leggst á nytjastofna eins og sardínu, ansjósu, lýsing og fleiri tegundir.

Fiskneysla í Japan dregst saman

7. febrúar 2010, 11:00 - Fiskneysla í Japan dróst saman í desember. Meðalupphæðin sem varið var til kaupa á sjávarafurðum fór niður í 96 evrur (17 þúsund ísl. kr.) á hverja fjölskyldu, sem er um 3,4% samdráttur. Mestur samdrátturinn varð í sölu á ferskum fiski, eða 6,1%.

Föstudagur

ESB: Innflutningur á rússneskum fiski leyfður á ný?

5. febrúar 2010, 15:00 - Talið er að brátt verði opnað fyrir innflutning á fiski á ný frá Rússlandi til ríkja innan Evrópusambandsins þar sem viðeigandi stofnun hefur verið tilnefnd til að votta veiðar rússneskra skipa, að því er fram kemur á IntraFish.

Pokabeitningarvélar í alla Vísisbátana

5. febrúar 2010, 13:30 - Vísir hf. , stærsta línuútgerð landsins, hefur keypt beitningarvélar í alla fimm línubáta sína og jafnframt tryggt sér 20 milljónir pokabeitna. Samningur þar að lútandi var nýlega gerður við Bernskuna ehf. og KM Stál ehf. Bernskan ehf.

Minni útflutningur á óunnum ísfiski

5. febrúar 2010, 12:30 - Samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu hefur útflutningur á óunnum ísfiski bæði minnkað að magni til og einnig sem hlutfall af heildarafla, að því er fram kemur í frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu.

Frumvarp sjávarútvegsráðherra: Heimilt að veiða 6 þúsund tonn við strandveiðar

5. febrúar 2010, 11:57 - Heimilt verður að veiða allt að 6 þúsund tonn af botnfiski við strandveiðar í sumar samkvæmt frumvarpi sem Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra mun mæla fyrir á Alþingi á næstu dögum. Samhliða leggur ráðherra til breytingar á lögum sem fela í sér að auk 17.500 kr.

Framboð á fiskmörkuðum hefur ekki dregist saman

5. febrúar 2010, 10:06 - Í frétt sem birt er á heimasíðu Fiskmarkaðs Íslands kemur fram að framboð af fiski á fiskmörkuðum hafi ekki dregist saman sem hlutfall af lönduðum afla undanfarin ári.

Fimmtudagur

Kemur nýliðun skötusels að verulegu leyti frá Rockall svæðinu?

4. febrúar 2010, 15:00 - Skötuselsstofninn við Ísland hefur stækkað mikið vegna aukinnar nýliðunar. Að hve miklu leyti þessi nýliðun kemur frá hrygningarsvæðum vestan Bretlandseyja er ekki vitað en talið er að sum ár geti þau svæði skilað seiðum alla leið á íslenska landgrunnið.

Kappkostað að hámarka verðmætin

4. febrúar 2010, 12:01 - Loðnuveiðarnar fara hægt af stað enda reyna loðnuútgerðirnar að skipuleggja veiðarnar með þeim hætti að sem mest verðmæti fáist úr úr þeim takmarkaða loðnukvóta sem úthlutað hefur verið.

Miðvikudagur

Bandaríkin: Markaður með ýsu í jafnvægi en búist við hækkun

3. febrúar 2010, 15:00 - Framboð á ferskri ýsu í norðaustanverðum Bandaríkjunum hefur verið nokkuð stöðugt. Það stafar af því að vel hefur viðrar til veiða á þessu svæði og ýsan hefur verið í þéttum torfum á Georgsbanka.

Tveir hnúfubakar merktir í Ísafjarðardjúpi

3. febrúar 2010, 11:38 - Þann 28. janúar voru merktir tveir hnúfubakar skammt innan við Æðey í Ísafjarðardjúpi. Upplýsingar hafa borist um ferðir annars þeirra, en sá synti út úr Ísafjarðardjúpi daginn eftir merkingu. Þaðan hélt hvalurinn ákveðið til vesturs og inn í grænlenska lögsögu. 2.

Fiskvinnsla hefst á ný á Grenivík

3. febrúar 2010, 10:03 - Atvinnuleysi á Grenivík þurrkaðist út í byrjun vikunnar þegar bolfiskvinnsla hófst á ný í plássinu eftir átta mánaða hlé. Það er útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Gjögur sem hefur, í samstarfi við heimamenn á Grenivík, hafið þar fiskvinnslu í...

Þriðjudagur

Loðnan finnst ekki við Noreg

2. febrúar 2010, 15:15 - Leit norskra skipa að loðnu í Barentshafi lýkur í dag án þess að loðnan hafi fundist í veiðanlegu magni, að því er fram kemur á vef norska sjávarútvegsráðuneytisins. Á sama tíma er fjöldi norskra loðnuskipa að veiðum í íslensku lögsögunni.

Loðnuveiðar hafnar við Ingólfshöfðann

2. febrúar 2010, 11:42 - ,,Það er búin að vera fín veiði hérna úti af Ingólfshöfðanum síðan í gær og töluvert að sjá af loðnu. Við tókum eitt kast í nótt og annað í dag og frystum aflann um borð,” sagði Guðmundur Jónsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni EA í samtali við...

Mánudagur

Loðnan: HB Grandi leggur áherslu á hrognatöku

1. febrúar 2010, 16:21 - HB Grandi stefnir að því að nýta sem mest af loðnukvóta sínum til hrognatöku en það þýðir að veiðar skipa félagsins hefjast að öllu óbreyttu ekki fyrr en um eða upp úr miðjum febrúar.

Danskur sjávarútvegur: Tæpir 7 milljarðar í styrki 2010

1. febrúar 2010, 15:00 - Í desember síðastliðnum var gengið frá samkomulagi um opinbera styrki í sjávarútvegi í Danmörku á árinu 2010. Heildarupphæðin er tæpar 300 milljónir króna danskar (tæpir 7 milljarðar ísl. kr.) að meðtöldum styrkjum frá ESB. Styrkirnir skiptast á milli fiskveiða og vinnslu og fiskeldis.

Smábátur setur Íslandsmet í mánaðarafla

1. febrúar 2010, 12:00 - Krókaaflamarksbáturinn Tryggvi Eðvarðs SH frá Rifi setti aflamet í nýliðnum janúarmánuði í flokki smábáta, en hann fiskaði 230 tonn. Þetta er mesti afli sem smábátur hefur lagt á land í einum mánuði til þessa. Báturinn rær með landbeitta línu.

Sunnudagur

Perú: Bjartsýni á að verð á fiskimjöli haldist í sögulegu hámarki

31. janúar 2010, 11:00 - Stjórnvöld í Perú eru bjartsýn á að verð á fiskimjöli muni haldast áfram í sögulegu hámarki en verðið fór í 1.700 dollara á tonnið á árinu 2009. Aðstæður séu hagstæðar á mörkuðum og gæði mjölsins batni stöðugt.

Laugardagur

Strandveiðiaflinn fór lítið til vinnslu í heimahöfn

30. janúar 2010, 14:31 - Aðeins 17% af þeim afla sem strandveiðibátarnir veiddu síðastliðið sumar fór til vinnslu í heimahöfn bátanna. Hitt var selt til vinnslu eða á markað utan löndunarhafnar. Þetta kemur fram í svari sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar á Alþingi.

Föstudagur

Loðnukvótinn gefur 10 milljarða í útflutningstekjur

29. janúar 2010, 16:18 - Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hefur að tillögur Hafrannsóknastofnunar í dag ákveðið að heimila veiðar á 130.000 tonnum af loðnu, en þar af koma rúmar 90.000 þús.

Gríðarlega jákvæðar fréttir

29. janúar 2010, 16:10 - ,,Þetta eru gríðarlega jákvæðar fréttir. Þótt kvótinn sé lítill skiptir hann sköpum hvað manneldisvinnslu á loðnu varðar. Vonandi mælist svo meira síðar,” sagði Friðrik J.

Hafró leggur til 130.000 tonna loðnukvóta

29. janúar 2010, 16:00 - Hafrannsóknastofnunin lagt til við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið að leyfilegur hámarksafli loðnu á þessari vertíð verði 130 þúsund tonn. Sem kunnugt er hefur rs. Árni Friðriksson verið við mælingar á stærð loðnustofnsins frá því 5. janúar sl.

Völusteinn hefur tekið við eignum Festar

29. janúar 2010, 15:00 - Völusteinn ehf. tók yfir eignir Festar ehf. í Hafnarfirði nú um áramótin. Völusteinn gerir nú út fjóra smábáta og rekur fiskvinnslu í Hafnarfirði. Alls vinna um 60 manns hjá Völusteini.

Stærsti plastfiskibátur sem smíðaður hefur verið hér

29. janúar 2010, 11:55 - Bátasmiðjan Seigla hefur hafið smíði á stærsta plastfiskibáti sem smíðaður hefur verið á Íslandi, að því er fram kemur í nýjustu Fiskifréttum. Um er að ræða þriggja þilfara bát, lengd er 15 metrar, mesta breidd er 5,7 metrar og stærð nálægt 50 brúttótonn.

Afurðaverð hefur hækkað um 7% í erlendri mynt á tæpu ári

29. janúar 2010, 10:10 -  Verð á íslenskum sjávarafurðum (meðaltal allra afurðaflokka) mælt í erlendri mynt hækkaði um 1,1% í desember síðastliðnum samkvæmt útreikningum IFS greiningar m.v. tölur um framleiðsluverð í desember sem Hagstofan birti í morgun.

Fimmtudagur

Um helmingur af skarkola og sólkola fluttur út óunninn

28. janúar 2010, 15:12 - Skötuselur og koli eru þær tegundir sem hlutfallslega mest hefur verið flutt út óunnið í gámum síðustu árin en í tonnum talið er mest flutt út af ýsu í gámum, að því er fram kemur í Fiskifréttum sem fylgja Viðskiptablaðinu í dag.

Ágætar söluhorfur fyrir frystan þorsk

28. janúar 2010, 12:02 - Söluhorfur fyrir sjófrystan og landfrystan þorsk eru ágætar og verð hefur verið að styrkjast síðustu mánuðina eftir verulega niðursveiflu í kjölfar efnahagshrunsins, að því er fram kemur í Fiskifréttum í dag.

Miðvikudagur

Bretland: Þorskur í helgarmatinn

27. janúar 2010, 15:15 - Breskar fjölskyldur velja nú þorsk í síauknum mæli í helgarmatinn um leið og verð á hefðbundnum fish and chips réttum hefur rokið upp, að því er fram kemur á vef The Guardian. Neysla á þorski í Bretlandi hefur minnkað vegna hækkandi verðs.

 
Viðskiptablaðið · Myllusetur ehf · Fiskislóð 22 · 101 Reykjavík · Sími: 511-6622 · vb@vb.is · askrift@vb.is · RSS