11. mars 2010, 15:00 - Háfur sem merktur var við austurströnd Bandaríkjanna árið 2005 veiddist við Ísland rúmum fjórum árum síðar. Vísindamenn segja þetta merkilega vísbendingu um tengsl þessara tveggja hafsvæða, að því er fram kemur í Fiskifréttum sem fylgja Viðskiptablaðinu í dag. Enok S. Klemensson, vélavörður á beitningarvélabátnum Kristínu ÞH, fann merkið í háfnum er skipið var að veiðum á um 40 faðma dýpi úti fyrir Hvalnesi, suðaustur af landinu í ágúst í fyrra. Hann skilaði merkinu til Hafrannsóknastofnunar. Í ljós kom að háfurinn hafði verið merktur í rannsóknum sem fram fara úti fyrir ströndum Norður-Ameríku.
11. mars 2010, 12:02 - Stuttri og snarpri loðnuvertíð er að ljúka og má ætla að útflutningsverðmæti loðnuafurðanna sé í kringum 11 milljarðar króna, að því er Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar segir í samtali við Fiskifréttir sem fylgja Viðskiptablaðinu í dag.
10. mars 2010, 17:01 - Bleikjan er verðmætasti eldisfiskur Íslendinga. Á síðasta ári var útflutningur eldisbleikju um 3.000 tonn og söluverðmætið um tveir milljarðar króna. Það er um 70% af heildarútflutningsverðmætum eldisfisks.
10. mars 2010, 15:33 - Fiskmarkaðir á Íslandi hafa skorað á sjávarútvegsráðherra að auka aflaheimildir í þorski, ýsu, ufsa,karfa, keilu og löngu. Í frétt frá Fiskmarkaði Íslands, Fiskmarkaði Suðurnesja og Reiknistofu fiskmarkaða segir að með stórfelldum niðurskurði á aflaheimildum sl.
10. mars 2010, 13:14 - Norskir eldisfyrirtæki töpuðu meira en einum milljarði norskra króna á þorskeldi á árunum 2005-2008 og mörg fyrirtækjanna hafa lagt upp laupana, að því er norska útvarpið skýrir frá. Það jafngildir 22 milljörðum íslenskra króna.
9. mars 2010, 16:07 - Hollenski risatogarinn Maartje Theadora leggur af stað frá heimalandi sínu í þessari viku áleiðis yfir Atlantshafið og hyggst skipstjórinn nota 160 fermetra stórt segl til þess að hjálpa til við að knýja skipið áfram.
9. mars 2010, 15:00 - Unnt væri að vinna mjög verðmætar afurðir úr þeim fiski sem kastað er fyrir borð á evrópskum fiskiskipum. Hér er alls um eina milljón tonna af fiski að ræða.
9. mars 2010, 10:41 - Loðnuveiðum skipa HB Granda á vertíðinni er að öllu óbreyttu lokið. Skip félagsins luku veiðunum í gær með samtals um 4.900 tonna afla en þar af fara 3.100 tonn til hrognatöku og vinnslu á Akranesi og 1.800 tonn fara til sams konar vinnslu á Vopnafirði, að því er fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins.
9. mars 2010, 09:08 - Í dag verður Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi slitið í 12. sinn. Þessu sinni útskrifast 18 nemendur frá 14 löndum, átta konur og tíu karlar.
8. mars 2010, 15:00 - Loðnuveiðar Norðmanna í Barentshafi eru vel á veg komnar en veiðin hefur þó verið misjöfn. Í lok síðustu viku höfðu þeir veitt ríflega helming kvóta síns. Í nýliðinni viku veiddust alls tæp 55 þúsund tonn, þar af var um 21 þúsund tonni landað til mjöl- og lýsisvinnslu.
8. mars 2010, 12:00 - ,,Það hefur verið fínasta veiði hér í Faxaflóanum síðan í gærkvöldi. Hér eru átta skip að veiðum og nokkur til viðbótar eru á siglingu með afla til löndunar,” sagði Hörður Már Guðmundsson skipstjóri á Þorsteini ÞH þegar Fiskifréttir náðu tali af...
8. mars 2010, 09:01 - „Ég tel að næsta skref sé að hugleiða hvort ekki sé rétt að setja fiskveiðistjórnunarmálið næst í þjóðaratkvæðagreiðslu," segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, í viðtali við Fréttablaðið í dag.
7. mars 2010, 11:00 - Útflutningur sjávarafurða frá Noregi hefur aukist um 12% á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2010 miðað við sama tíma í fyrra. Aukninguna má aðallega rekja til þess að meira er flutt út af laxi en áður og betra verð fæst fyrir laxinn.
6. mars 2010, 15:16 - Eyða þarf því óvissuástandi sem ríkir um framtíðarskipan í íslenskum sjávarútvegi svo fyrirtækin þori að fjárfesta í nýjum veiði- og vinnslugreinum, segir framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.
5. mars 2010, 15:00 - Á síldarárunum hér áður fyrr var norsk-íslensk síld helsta hráefnið sem fiskmjölsverksmiðjur hér á landi tóku til vinnslu, allt þar til veiðarnar hrundu 1968.
5. mars 2010, 12:06 - Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hefur keypt frystitogarann Rex HF til veiða og vinnslu á uppsjávarfiski. Skipið hefur hlotið nafnið Gandí VE-171. ,,Það sem vakir fyrst og fremst fyrir okkur er að fá öflugt skip til að frysta makríl um borð,” segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í...
5. mars 2010, 09:10 - Enn eru óveidd um 5.500 tonn af loðnukvóta ársins hjá skipum HB Granda en það aflamagn samsvarar því að skipin fjögur eigi eftir að fara eina veiðiferð hvert, að því er fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins.
4. mars 2010, 15:00 - Móttaka hráefnis hjá fiskmjölsverksmiðjum á Íslandi hefur dregist saman um tæp 70% frá árinu 2002 og hefur hún ekki verið minni í áratugi.
4. mars 2010, 13:42 - Í lagafrumvarpi sem sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram á Alþingi er bannað að selja aflaheimildir úr þrotabúum burt frá einstökum sveitarfélögum ef um er að ræða a.m.k. fimmtung eða meira af kvóta viðkomandi byggðarlags.
4. mars 2010, 12:00 - Makrílveiðar á handfæri eru á byrjunarstigi hér við land en þær hafa alla burði til þess að geta orðið góður kostur fyrir smábáta að mati vinnuhóps um makrílveiðar sem sjávarútvegsráðherra skipaði og skilaði skýrslu sinni í síðustu viku.
3. mars 2010, 15:10 - Fiskurinn verður stressaður þegar hljóðbylgjur frá olíuleitarskipum streyma um sjóinn en bylgjurnar skaða hann ekki, samkvæmt rannsóknum norskra vísindamanna sem kynntar voru í vikunni, að því er fram kemur á vef norska ríkisútvarpsins.
3. mars 2010, 12:51 - Frystitogarinn Kleifarberg ÓF sem er í eigu Brims hf. landaði í gær afla úr Barentshafi að verðmæti um þrjú hundruð miljónir króna. Afli skipsins nam um eitt þúsund tonnum miðað við fisk upp úr sjó.
2. mars 2010, 17:18 - Frystitogarinn Arnar HU-1 frá Skagaströnd kom á dögunum í land með verðmætasta farm sinn frá upphafi, eftir sautján daga veiðar í Barentshafi. Aflinn var að þessu sinni um 900 tonn; 720 tonn af þorski og um 180 Frystitogarinn Arnar HU-1 frá Skagaströnd kom á dögunum í land með verðmætasta farm sinn frá...
2. mars 2010, 12:10 - Færeyska útgerðin JFK Trol telur sig hafa orðið fyrir tjóni upp á jafnvirði 350 milljóna íslenskra króna vegna afleiðinga þess að Rússar tóku togarann Skálabergs í lögsögu sinni. Útgerðin segir færeysk stjórnvöld bera ábyrgð á því hvernig fór og krefjast bóta.
2. mars 2010, 10:54 - Verkefnið Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum, eða svokallað vorrall, hófst síðustu helgina í febrúar og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Fimm skip taka þátt í verkefninu; togararnir Bjartur, Ljósafell og Jón Vídalín og rannsóknaskipin Bjarni Sæmundsson og Árni Friðriksson.
1. mars 2010, 15:00 - Loðnuveiðar Norðmanna eru komnar vel á veg en veiðum á norsk-íslensku síldinni er að ljúka. Í síðustu viku tilkynntu norsk skip um veiðar á 12.900 tonnum af norsk-íslenskri síld. Vertíðinni lauk í síðustu viku hjá flestum skipum.
1. mars 2010, 12:59 - Beluga-styrjan í Kaspíahafi, sem gefur frá sér hrognin í hinn eina sanna svarta kavíar, hefur verið svo gróflega ofveidd síðustu áratugina að stofninn eru nú aðeins 10% af því sem hann áður var.
1. mars 2010, 09:47 - Í lok árs 2009 voru 1.582 fiskiskip á skrá hjá Siglingastofnun og hafði þeim fjölgað um 53 frá árinu áður. Fjöldi vélskipa var alls 768 og samanlögð stærð þeirra 86.769 brúttótonn. Vélskipum fækkaði um 1 skip á milli ára en flotinn stækkaði um 379 brúttótonn.
28. febrúar 2010, 11:00 - Sjómenn víðsvegar að úr Bandaríkjunum fjölmenntu í vikunni á mótmælafund fyrir framan Capitol þinghúsið í Washington til að krefjast breytinga á lögum um stjórn fiskveiða. Um 3 þúsund sjómenn tóku þátt í þessum fjöldafundi.
27. febrúar 2010, 14:40 - Japönsk stjórnvöld hafa harðlega mótmælt áformum um að setja Atlantshafs bláuggatúnfisk á lista yfir dýr í útrýmingarhættu og banna milliríkjaviðskipti með hann.