19. ágúst 2010, 12:49 - Fjarðalax ehf. stefnir að stórfelldu laxeldi í Tálknafirði, Patreksfirði og Arnarfirði. Sem stendur hefur Fjarðalax leyfi til að ala 3000 tonn af laxi í Patreksfirði og Tálknafirði og 600 tonn í Arnarfirði, en félagið hefur einnig sótt um 3000 tonna leyfi þar.
19. ágúst 2010, 12:03 - Kjarasamningur vegna starfa vélstjóra á skipum Hafrannsóknarstofnunar rann út þann 31. mars 2009. Á vef Félags vélstjóra og málmtæknimanna segir að í samningaviðræðum hafi viðsemjendur félagsins ekki verið til viðræðu um leiðréttingu á mjög lágum grunnlaunum...
18. ágúst 2010, 12:22 - Norska útgerðarfélagið Ervik Havfiske hefur skrifað undir samning við tyrknesku skipasmíðastöðina Tersan um smíði á stærsta línubáti í heimi, að því er fram kemur á vef samtaka norskra útvegsmanna. Báturinn sem fær nafnið Frøyanes verður búinn fullkomnustu tækjum.
17. ágúst 2010, 10:57 - Talið er að svikarar, sem þykjast vera fiskimenn, hafi nælt sér í þúsundir dollara frá olíufélaginu BP í bætur vegna olíuslyssins í Mexíkóflóa. Til þessa hefur BP greitt 308 milljónir USD (3,7 milljarða ISK) í bætur til einstaklinga og fyrirtækja í sjávarútvegi.
16. ágúst 2010, 11:25 - Fjallað er í opnugrein í nýjasta hefti tímaritsins Fishing News International um þá umdeildu ákvörðun sjávarútvegsráðherra að takmarka dragnótaveiðar án þess að nokkur vísindaleg rök liggi þar að baki, að því er fram kemur á vef LÍÚ.
16. ágúst 2010, 11:00 - Japanska risafyrirtækið Nomura Securities Co vinnur að stofnun sjóðs sem fjárfestir einöngu í útgerð og fyrirtækjum tengdum sjávarútvegi. Ráðgert er að safna um 1,6 milljörðum USD í sjóðinn sem eru litlir 190 milljarðar íslenskra króna. Frá þessu er greint á fréttavefnum fis.
15. ágúst 2010, 11:56 - Rannsóknir sem fara fram á vegum Genís ehf. benda til þess að kítinefni sem unnin eru úr rækju séu græðandi og bólgueyðandi, að því er fram kemur í nýjustu Fiskifréttum.
13. ágúst 2010, 09:18 - Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júlímánuði, metinn á föstu verði, var 13,2% minni en í júlí 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 13% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði, að því er fram kemur í frétt frá...
12. ágúst 2010, 11:32 - Steindór Sigurgeirsson, aðaleigandi útgerðarfélagsins Storms Seafood ehf. sem styrr hefur staðið um undanfarna daga vegna erlendrar eignaraðildar, hefur búið í Hong Kong undanfarin ár. Eignarhaldsfélag sem hann er framkvæmdastjóri hjá, Nautilus Holdings, á og rekur meðal annars eitt stærsta sandhverfueldi í Kína.
11. ágúst 2010, 11:13 - Þorskeldi í Noregi gengur nú í gengum miklar þrengingar. Talið er að æ fleiri þorskeldisstöðvar þurfi að leggja upp laupana í Noregi. Líffræðilegar breytingar í sjónum, samkeppni við villtan fisk og fisk frá Asíu leiðir til milljónataps í greininni, að því er fram kemur í...
10. ágúst 2010, 11:08 - Sandsílavertíðinni er nú að ljúka við Danmörk og danskir fjölmiðlar hafa metið þau verðmæti sem sandsílið hefur skilað. Alls hafa dönsk skip veitt um 290 þúsund tonn af sandsíli á árinu 2010. Meðalverðið er talið hafa verið um 1,60 DKK á kíló til skipanna, eða 33,37 ISK.
9. ágúst 2010, 10:47 - Vöxtur í útflutningi sjávarafurða frá Noregi virðist óstöðvandi. Útflutningurinn í júlí nam 3,8 milljörðum NOK sem er met, eða um 75 milljörðum ISK. Hér er um 15% aukningu að ræða í verðmætum talið miðað við sama mánuð í fyrra.
8. ágúst 2010, 12:25 - Rússneskir landamæraverðir, sem voru á æfingu í Barentshafi fyrir nokkrum vikum síðan, komust á snoður um afar sérstæðan veiðiþjófnað. Á æfingunni fóru þeir framhjá rússneska hafrannsóknaskipinu Heidi.
6. ágúst 2010, 13:01 - Kynbætur Stofnfisks hf. á eldisþorski lofa góðu. Talið er að tvöfalda megi vaxtarhraða þorsksins á fjórum eða fimm kynslóðum. Þriðja kynslóð kynbættra þorskseiða er væntanleg í eldi árið 2012.
6. ágúst 2010, 11:42 - Sjávarútvegsráðherra hefur sent frá sér fréttatilkynningu til að ítreka sjónarmið Íslendinga í makríldeilunni vegna kröfu hagsmunaaðila innan ESB og í Noregi um að bann verði sett á innflutning sjávarafurða frá Íslandi.
5. ágúst 2010, 12:23 - Stærsta skip íslenska fiskiskipaflotans Kristina EA 410 kom til hafnar á Akureyri í morgun eftir vikulanga siglingu frá Las Palmas. Skipið mun á næstu dögum halda til síldar- og makrílveiða hér við land, að því er fram kemur á heimasíðu Samherja. Samherji hf.
5. ágúst 2010, 11:23 - Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að krafa um innflutningsbann á íslenskar sjávarafurðir til ESB-landa vegna makrílveiða okkar væri fráleit, að því er fram kemur í Fiskifréttum sem fylgja Viðskiptablaðinu í dag.
5. ágúst 2010, 10:24 - "Samherji hefur fest kaup á ríflega 45% hlut í kanadíska útgerðarfyrirtækinu Newfound Resources (NRL) í gegnum dótturfélag sitt, Onward Fishing Company í Skotlandi.
4. ágúst 2010, 10:00 - Skuttogarinn Atlantic Star er nýkominn úr veiðiferð frá Flæmingjagrunni og veiddi þar í einni veiðiferð allan þorskkvóta Norðmanna á svæðinu sem er 510 tonn.
3. ágúst 2010, 14:35 - Alvarlegur súrefnisskortur hrjáir nú fiskimið við Fjón í Danmörku. Á einum stað í suðurhluta Litlabeltis er súrefnið að stærstum hluta uppurið. Í eyjahafinu suður af Fjóni er súrefnisinnihaldið svo lágt að fiskar hafa flúið svæðið.
2. ágúst 2010, 12:00 - Norsk stjórnvöld vilja ekki taka upp Smugusamninginn og tvíhliða samkomulag milli Noregs og Íslands um gagnkvæmar veiðar. Í samningnum, sem er frá árinu 1999, er ákvæði um endurskoðun í ár ef aðilar óska þess annars framlengist hann um 4 ár. Þetta kemur fram á vef samtaka norskra útvegsmanna.
1. ágúst 2010, 11:00 - Í makrílleiðangri sem nú stendur yfir á Árna Friðrikssyni rákust leiðangursmenn tvisvar á túnfiskvöður sem er óvenjuleg sjón á Íslandsmiðum. Frá þessu er greint í nýjustu Fiskifréttum.
30. júlí 2010, 12:00 - Könnun á útbreiðslu makríls á íslensku hafsvæði stendur nú yfir. Víða hefur orðið vart við makríl það sem af er og virðist vera heldur meira af honum en í fyrra, að sögn leiðangursstjóra um borð í rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni. Leiðangurinn hófst 20.
30. júlí 2010, 09:12 - Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 45,6 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2010 samanborið við 35 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 10,6 milljarða eða 30,2% á milli ára, að því er fram kemur í frétt frá Hagstofu Íslands.
29. júlí 2010, 11:00 - Makrílbáturinn Blíða KE hefur gert það gott á handfæraveiðum undanfarnar vikur. Fáeinir smábátar hafa stundað þessar veiðar síðustu tvö til þrjú árin en Blíða KE er aflamarksbátur og veiðir með átta handfærarúllum.
28. júlí 2010, 14:09 - Fiskistofa hefur úthlutað til skipa því viðbótaraflamarki í þorski og ýsu sem tilkynnt var um í síðustu viku. Alls fengu 600 skip úthlutað aflamarki allt frá 1 kg upp í 26,6 tonn í þorski og frá 1 kg upp í 22,6 tonn í ýsu, að því er fram kemur á vef Fiskistofu.
27. júlí 2010, 13:08 - Írsk stjórnvöld kynntu nýlega áætlun um að skapa 600 ný störf í sjávarútvegi á næstu þremur árum og auka virði sjávarafurða um 50 milljónir punda, eða um 9,5 milljarða ISK.
25. júlí 2010, 11:19 - Mikill meirihluti fiskstofna í lögsögu Bretlands er nýttur umfram mögulegan langtímaafrakstur, að því er fram kemur í nýrri opinberri skýrslu um stöðu sjávarútvegs í Bretlandi árið 2007.
23. júlí 2010, 14:21 - Skip HB Granda hafa alls veitt rúmlega 15.000 tonn af makríl og síld það sem af er þessu ári. Undanfarin ár hefur makríll aðallega veiðst sem meðafli á síldveiðunum en nú bregður svo við að makríll er um 60% aflans, að því er fram kemur á heimasíðu HB Granda.
23. júlí 2010, 11:23 - Færeyingar hafa ákveðið 85 þúsund tonna makrílkvóta á árinu 2010. Jacob Vestergaard, sjávarútvegsráðherra Færeyja, heldur þannig fast við þá skoðun sína að Færeyingar eigi rétt á því að veiða 15% af heildarkvóta í makríl.