Björgólfsfeðgar: Sjálfskuldarábyrgð tengist ekki kaupum á Landsbankanum

9. mars 2010, 19:17 - Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson segja að engin sjálfskuldarábyrgð hafi verið veitt þegar tekið var lán í Búnaðarbankanum fyrir hluta af kaupverði Landsbankans. Í yfirlýsingu sem þeir hafa sent fjölmiðlum kemur fram að sjálfskuldarábyrgðin, sem Sólon Sigurðsson fyrrum bankastjóri Búnaðarbankans sagðist hafa farið fram á áður en Samson var lánað í tengslum við einkavæðingu Landsbankans, sé vegna annars láns sem fengið var í Kaupþingi. Fyrra lánið hafi verið greitt upp í lok apríl 2005.   Meira

Sveitarfélög upplýsi ráðuneyti ársfjórðungslega um fjárhagsstöðu

9. mars 2010, 17:13 - Kristján Möller, ráðherra samgöngu- og sveitastjórnamála, hefur lagt fram frumvarp á Alþingi sem á að tryggja nauðsynlegar heimildir til  að afla ársfjórðungslega fjármálaupplýsinga frá sveitarfélögum.   Meira

Samstaða stjórnar og stjórnarandstöðu í einu máli

9. mars 2010, 15:30 - „Sjálfstæðisflokkurinn mun veita þessu frumvarpi brautargengi," sagði Illugi Gunnarsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins í upphafi þingfundar í dag.   Meira

CCP ætlar að ráða 60 nýja starfsmenn á Íslandi

9. mars 2010, 14:18 - Tölvuleikjafyritækið CCP auglýsir nú 26 lausar stöður í Reykjavík á vefsíðu sinni sem áætlað er að ráða í á næstu þremur mánuðum. Þar af eru mörg sérhæfð störf við hönnun tölvuleikja og forritun.   Meira

Leigusamningum fækkað nokkuð í febrúar eftir góða fjölgun í janúar

9. mars 2010, 13:04 - Leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði lítillega á milli mánaða í febrúar, eða um 8,7%, eftir að hafa tekið dágóðan kipp í janúar sl.   Meira

Ríkisverðbréf á gjalddaga og útlendingar fá 90 milljarða í hendurnar

9. mars 2010, 11:54 - Í mars eru ríkisvíxlar að fjárhæð 20 milljarðar króna á gjalddaga og þar af höfðu erlendir aðilar upphaflega keypt 16,7 milljarða af þeim víxlum samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka. Jafnframt er ríkisbréfaflokkurinn RIKB 10  á gjalddaga 17. mars -  eftir rétt rúma viku.   Meira

Auður Capital verður viðurkenndur ráðgjafi á First North Iceland

9. mars 2010, 10:45 - Nasdaq OMX Iceland hf. hefur samþykkt að Auður Capital verði viðurkenndur ráðgjafi (e. Certified Adviser, CA) á First North Iceland. Hlutverk viðurkennds ráðgjafa felst í því að vera til ráðgjafar og aðstoðar fyrirtækjum við skráningu á First North og á meðan bréf þeirra eru í viðskiptum...   Meira

Bílaleigan Hertz kaupir 365 Toyotabíla

9. mars 2010, 10:34 - Undirritaður hefur verið samningur milli Toyota í Kópavogi og Bílaleigunnar Hertz um kaup á 365 nýjum Toyota bifreiðum. Þar af eru 283 Yaris, Verso, Auris og Avensis fólksbílar, 50 Rav4 jepplingar og 32 Land Cruiser jeppar.   Meira

SA: Örlög efnahagslífsins í höndum Íslendinga sjálfra

9. mars 2010, 10:25 - Samtök atvinnulífsins telja að örlög íslensks atvinnu- og efnahagslífs séu fyrst og fremst í höndum Íslendinga sjálfra. Aðgerðir eða aðgerðaleysi ráði því hvernig til takist að komast út úr kreppunni í kjölfar bankahrunsins í október 2008.   Meira

Icesave-málstað Íslands gert hátt undir höfði á CNBC

9. mars 2010, 10:02 - Greinendur CNBC sjónvarpsstöðvarinnar tóku upp málstað Íslands í Icesave-deilunni gegn Bretum og Hollendingum með afgerandi hætti í umfjöllun stöðvarinnar um málið í gær.   Meira

Stór hluti af lánasafni Kaupþings af athugunarlista

9. mars 2010, 08:42 - Hlutfall útlána Kaupþings, sem hafa verið á athugunarlista skilanefndar bankans, hefur lækkað mikið á einu ári. Í mars 2009 var 41% af norræna lánasafni bankans á athugunarlistanum og 76% af evrópska lánasafninu.   Meira

Fyrirtæki geti dreift aðflutnings- og vörugjöldum

9. mars 2010, 07:38 - Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra tala fyrir stjórnarfrumvarpi í dag sem er ætlað að bregðast tímabundið við greiðsluerfiðleikum fyrirtækja vegna þess samdráttar sem nú ríkir í íslensku efnahagslífi.   Meira

Ormarsá opnast íslenskum stangaveiðimönnum

9. mars 2010, 07:21 - „Svisslendingur hefur verið með ána á leigu í fimmtán ár,“ segir Höskuldur Þorsteinsson á Höfða á austanverðri Melrakkasléttu, sem er í forsvari fyrir veiðiréttarhafa í Ormarsá á Sléttu.   Meira

Stéttarfélög knýi fram aðgerðir til að forðast annað hrun

9. mars 2010, 07:01 - Miðstjórn Samiðnar lýsti eftir fund í gær miklum vonbrigðum með þróun efnahagsmála, aðgerðarleysi stjórnvalda og þá stöðnun sem við blasi hvarvetna í íslensku samfélagi.   Meira

Mánudagur

Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs óbreytt hjá Standard & Poor's

8. mars 2010, 16:48 - „Höfnun íslenskra kjósenda á lögum um endurgreiðslu Icesave skuldar í þjóðaratkvæðagreiðslu hefur engin tafarlaus áhrif á lánshæfismat Ríkissjóðs Íslands,“ segir í nýrri skýrslu matsfyrirtækisins Standard & Poor's.   Meira

RB krókar til Ísfells

8. mars 2010, 16:32 - Ísfell hefur gengið frá kaupum á þeim hluta af rekstri RB veiðibúðar, sem lítur að handfæravörum. Hinir þekktu RB handfærakrókar, sem Birgir heitinn í RB hafði framleitt í áraraðir verða nú unnir af Ísfelli að því er segir í tilkynningu.   Meira

Actavis staðfestir í fyrsta sinn aðkomu að Ratiopharm

8. mars 2010, 16:19 - Actavis staðfestir í fyrsta sinn aðkomu að Ratiopharm í dag. Að sögn Hjördísar Árnadóttur talsmanns félagsins kynntu forráðamenn Actavis aðkomu sína að málinu fyrir æðstu stjórnendum Ratiopharm í höfuðstöðvum félagsins í Ulm í Þýskalandi í morgun.   Meira

Mesta veltan með ríkisbréf í dag

8. mars 2010, 15:42 - Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,2% í dag í tæplega 8 milljarða króna viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,2% í 0,3 milljarða króna viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,3% í 7,6 milljarða viðskiptum.   Meira

Össur komið í meirihlutaeigu útlendinga

8. mars 2010, 12:46 - Aðalfundur Össurar hf. verður haldinn á morgun en þetta er fyrsti aðalfundur félagsins eftir að það komst í meirihlutaeigu erlendra fjárfesta. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins eiga erlendir fjárfestar nú á milli 55 og 57% hlut í félaginu og fóru yfir 50% eignarhlut fyrir nokkrum vikum.   Meira

Sveitarfélög draga ekkert úr útgjöldum

8. mars 2010, 11:36 - Tekjur sveitarfélaga eru svipaðar í krónum talið á fjórða ársfjórðungi 2009 og 2008. Útgjöldin hafa hins vegar hækkað um 3,6%. Dregið hefur verulega úr fjárfestingu sveitarfélaga en önnur gjöld aukist um 9% milli ára.   Meira

Hægir á launahækkunum opinberra starfsmanna

8. mars 2010, 11:04 - Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 1,9% að meðaltali milli þriðja og fjórða ársfjórðungs 2009 en laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 0,8% á sama tíma.  Frá fyrra ári hækkuðu laun um 3,4% á almennum vinnumarkaði og um 3,0% hjá opinberum starfsmönnum.   Meira

Iðnaðurinn mun gegna lykilhlutverki í uppbygginu landsins

8. mars 2010, 07:55 - „Ég tel að iðnaðurinn, í víðustu merkingu þess orðs, eigi eftir að gegna lykilhlutverki í uppbyggingu landsins eins og hann hefur gert nú í áratugi og skapa þau 30.000 störf sem við þurfum að skapa til ársins 2020.   Meira

Stjórnir sjái til þess að stjórnendur axli ábyrgð

8. mars 2010, 07:11 - „Hlutverk stjórna er að sjá til þess að stjórnendur fyrirtækisins axli ábyrgð. Verkefni stjórna eiga því að snúast um að bæta gæði stjórnunar með því að spyrja gagnrýninna spurninga," segir í grein Þórönnu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra...   Meira

Sunnudagur

Tækifæri felst í markvissu markaðsstarfi

7. mars 2010, 18:09 - „Það eru klárlega tækifæri fyrir fyrirtækin í þessari kreppu. Þrátt fyrir að auglýsingamarkaðurinn hafi minnkað um kannski 30% þá eru þar tækifæri fyrir þá sem huga að markvissu markaðsstarfi og eru tilbúnir að fjárfesta til framtíðar.   Meira

Stjórnendur ÍAV reyndu að halda félaginu

7. mars 2010, 13:00 - Gunnar Sverrisson og Karl Þráinsson, forstjóri og aðstoðarforstjóri Íslenskra Aðalverktaka (ÍAV), reyndu að eignast fyrirtækið að nýju í nóvember í fyrra með því að gera Arion banka tilboð í það í samkurli við svissneska verktakafyrirtækið Marti Constructions.   Meira

Stofnfé Byr fært niður að nánast öllu leyti

7. mars 2010, 11:00 - Stofnfé í Byr sparisjóði verður fært niður um a.m.k. 90% við það að ríkissjóður leggi sjóðnum til 10,75 milljarða í eigið fé til þess að styrkja stöðu sjóðsins, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins.   Meira

Laugardagur

Steingrímur við Telegraph: Nei þýðir ekki að við ætlum ekki að borga

6. mars 2010, 23:30 - „Það er alveg skýrt að „nei“ þýðir ekki að við séum að neita því að greiða. Við ætlum að standa við skuldbindingar okkar. Að halda öðru fram er mjög svo hættulegt fyrir efnahagslífið í þess landi.“ Þetta hefur vefur breska blaðsins Telegraph eftir Steingrím J.   Meira

Stjórnarformaðurinn ver félagið fyrir dómi

6. mars 2010, 16:15 - Lögmenn forðast það oftast nær að verja sjálfa sig frammi fyrir dómara enda samræmist það ekki siðareglum lögmanna. "Lögmanni ber að forðast að samkenna sig skjólstæðingi sínum og hefur kröfu til að vera ekki samkenndur þeim sjónarmiðum og hagsmunum sem hann gætir fyrir skjólstæðing...   Meira

Ekki upplýst um forsendur verðlagningar að svo stöddu

6. mars 2010, 11:02 - "Ég get ekk upplýst um forsendur verðlagningarinnar á lánasöfnunum að svö stöddu. Nánar verður farið yfir það ferli sem staðið hefur yfir frá því í fyrrasumar, á kröfuhafafundi 17. mars nk.," sagði Hlynur Jónsson í samtali við Viðskiptablaðið.   Meira

Fasteignamarkaður: Fleiri samningar á milli vikna og meðalverðið færist upp

6. mars 2010, 08:17 - Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst nokkuð á milli vikna í liðinni. Þannig nam velta í vikunni 1.559 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 1.   Meira

 
Viðskiptablaðið · Myllusetur ehf · Fiskislóð 22 · 101 Reykjavík · Sími: 511-6622 · vb@vb.is · askrift@vb.is · RSS