23. febrúar 2010, 09:55 - Hátt í 5.000 tölvur tengdust beinni útsendingu og upptöku af því þegar hreindýraveiðileyfi voru dregin út hjá Umhverfisstofnun um helgina. Um 2.700 manns horfðu á beina útsendingu frá útdrættinum og um 2.000 horfðu á upptöku af fundinum að því er segir í tilkynningu frá Nýherja.
Um 3.800 umsóknir bárust um hreindýraveiðileyfi að þessu sinni. Hreindýraveiðileyfiskvóti fyrir árið 2010 er 1.272 hreindýr, skv. heimasíðu Umhverfisstofnunar. Fyrirtækið Sense, sem er dótturfélag Nýherja og sérhæfir sig í hljóð- og myndlausnum, annaðist útsendinguna um netið.
Meira
21. febrúar 2010, 11:00 - Rannsóknir á höfrungum hafa leitt í ljós að erfðaefni úr þeim gæti hugsanlega komið að gagni við að finna rétta meðhöndlun við sykursýki tvö sem hrjáir mannfólkið í æ ríkari mæli, að því er fram kemur á vef BBC.
Meira
17. febrúar 2010, 11:45 - Aldrei hafa fleiri sótt um hreindýraveiðileyfi en 3800 umsóknir hafa borist veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar. Umsóknarfresturinn rann út í gær.
Frá þessu er greint á vef Bændablaðsins. Jóhann G.
Meira
2. febrúar 2010, 18:08 - Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavíkurborg á fundi sínum í dag með 14 greiddum atkvæðum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en hjólreiðaáætlunin ber yfirskriftina „Hjólaborgin Reykjavík“ og felur í sér heildarsýn og...
Meira
27. janúar 2010, 16:11 - Hvítabjörn gekk á land í Þistilfirði og var felldur í dag klukkan 15:40. Ákvörðun um að fella björninn var tekin á grundvelli niðurstöðu starfshóps, sem í kjölfar þess að tveir hvítabirnir gengu á land árið 2008, vann skýrslu um viðbrögð við landgöngu hvítabjarna fyrir...
Meira
27. janúar 2010, 15:45 - Frá því hefur verið greint að hvítabjörn hafi gengið á land í Þistilfirði í dag.
Á vef Umhverfisstofnun kemur fram að stofnunin vinnur nú að viðbrögðum í samráði við lögreglu og önnur yfirvöld.
Meira
23. janúar 2010, 08:35 - Samkvæmt auglýsingunni verður heimilt að veiða allt að 1.272 hreindýr árið 2010 og skiptist kvótinn milli veiðisvæða.
Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofu en Umhverfisráðuneytið hefur að tillögu Umhverfisstofnunar ákvarðað hreindýraveiðikvóta ársins 2010 og tilhögun veiða.
Meira
18. janúar 2010, 11:32 - Í gæslu- og ískönnunarflugi Eirar, þyrlu Landhelgisgæslunnar á laugardag kom í ljós hafís við Hornbjarg sem nánast náði landi við Hornbjargsvita.
Meira
4. janúar 2010, 12:00 - Grænlensk yfirvöld hafa tilkynnt að leyft verði að veiða samtals 93 bjarndýr í landinu á þessu ári, nánar tiltekið 43 dýr á Upernavik veiðisvæðinu í Vestur-Grænlandi og 50 dýr í Austur-Grænlandi.
Meira
30. desember 2009, 10:47 -
Bretinn Ben Southall, sem varð hlutskarpastur í hópi 34.000 umsækjenda um „draumadjobbið" í Ástralíu á árinu, var mjög hætt kominn í síðustu viku.
Meira
28. desember 2009, 08:00 - Eigandi veitingastaðarins Prithi Raj á Featherstall Road North í Oldham í Englandi var sektaður nú fyrir jólin fyrir músgang. Hafði heilbrigðisfulltrúi komist að því að mýs höfðu nánast yfirtekið staðinn. Þá var heldur engin sápa eða handþvottaraðstaða fyrir starfsfólks staðarins.
Meira
26. desember 2009, 11:00 - Yfirmaður jarðhitafyrirtækis hefur verið dreginn fyrir rétt í Sviss og sakaður um að hafa valdið eignaspjöllum með því að framkalla öflugan jarðskjálfta.
Meira
16. desember 2009, 13:10 - Boris Johnson, borgarstjóri í London, tilkynnti í dag að Mitsubishi i-MiEV rafmagnsbíllinn hafi verið valinn sem leiðandi ökutæki í uppbyggingu umhverfisvænnar umferðarmenningar í borginni. Er þessi yfirlýsing gefin á umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í Kaupmannahöfn.
Meira
14. desember 2009, 11:42 - Breskar fjölskyldur verja að meðaltali um 250 Sterlingspundum árlega í vörur sem teljast sérstaklega umhverfisvænar, til að mynda sparnaðarljósaperur svo dæmi sé tekið.
Meira
1. desember 2009, 14:59 - Seltjarnarnesbær hefur gert samning til fjögurra ára við tækni- og rekstrarþjónustufyrirtækið Skyggni, dótturfélag Nýherja, um Rent a Prent prentþjónustu fyrir bæjarskrifstofu og grunnskóla bæjarfélagsins.
Meira
23. nóvember 2009, 08:55 - Áhugamenn um viskí bíða spenntir eftir því að fá að líta augum og hugsanlega dreypa á 100 ára gömlu skosku viskíi sem ráðgert er að grafa upp úr ís á Suðurheimsskautinu.
Meira
19. nóvember 2009, 16:06 - Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu voru afhent í 15. sinn í dag. Þau komu í hlut Íslenskra Fjallaleiðsögumanna fyrir markvissa umhverfisstefnu, með það að leiðarljósi að öll ferðamennska á vegum fyrirtækisins sé sjálfbær.
Meira
16. nóvember 2009, 10:02 - Hæstu sólahringsmeðaltöl á brennisteinsvetni í Hveragerði eru á bilinu 35-40µg/m3 sem er um fjórðungur af heilsuverndarviðmiðum Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Hæstu klukkutíma meðaltöl eru nokkuð hærri eða rúmlega 180µg/m3.
Meira
15. nóvember 2009, 11:00 -
Nýleg uppgötvun vísindamanna leiðir í ljós að í sjávardjúpunum finnst krabbategund sem lifir á trjám og viðarleyfum sem falla á hafsbotninn, að því er fram kemur á vef BBC.
Meira
13. nóvember 2009, 09:56 - Olíuskipið URALS STAR er nú á siglingu undan Suðausturlandi með 106 þúsund tonn af hráolíu innanborðs. Skipið stefnir 12 mílur suður af Dyrhólaey en skipið er á leið frá Murmansk til austurstrandar Bandaríkjanna með olíu til hreinsunar.
Meira
6. nóvember 2009, 10:47 - Mikið tjón hefur orðið í minkabúinu á Skörðugili í Skagafirði en þar hafa minkar sýkst af lungnabólgu undanfarið með þeim afleiðingum að fjöldi dýra hefur drepist.
Meira
31. október 2009, 12:20 - Eins og kunnugt er hófst rjúpnaveiði í gær framleitt hefur verið myndband um sjálfbærar veiðar á rjúpu í samstarfi Umhverfisstofnunar, Skotvís, umhverfisráðuneytisins og Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Meira
27. október 2009, 09:48 - Staðfest hefur verið af Alþjóðasamtökum álframleiðenda (IAI) að ISAL (Álverið í Straumsvík) náði bestum árangri allra álvera heims við að lágmarka losun flúorkolefna árið 2008.
Meira
25. október 2009, 11:00 -
Ný og sjaldgæf tegund af risakónguló fannst óvænt í Afríku og á Madagaskar, að því er fram kemur á vef BBC.
Þessi nýja tegund, sem hlotið hefur vísindanafnið Nephila komaci, er í flokki kóngulóa sem spinna stærstu vefi sem vitað er um.
Meira
19. október 2009, 10:40 - Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur nú fyrir leitinni að hæstu eik landsins.
Í tilkynningu frá Skógræktarfélaginu er fyrst tilnefnd eik í garði við Háagerði 11 í Smáíbúðahverfinu sem var flutt inn frá Svíþjóð, nánar tiltekið frá Vaxjö í...
Meira
18. október 2009, 11:08 - Sjórinn á Norðurheimskautinu gæti orðið íslaus að mestu leyti og opinn fyrir siglingar innan tíu ára, að því er fram kemur á vef BBC.
,,Þetta er eins og að maðurinn taki lokið af norðurhluta plánetunnar,” er haft eftir prófessor Peter Wadham, frá háskólanum í Cambridge, en hann hefur...
Meira
16. október 2009, 07:52 - Orkusetur hefur nú sett í loftið reiknivél sem hjálpar fólki að bera saman stofn- og rekstrarkostnað metanbíla og hefðbundinna bíla.
„Reiknivélin sýnir að spara má mörg hundruð þúsund í eldsneytiskostnað og nú eru metanbifreiðar líka á hagstæðara verði.
Meira
9. október 2009, 11:25 - Sá hluti Skerjafjarðarsvæðisins sem áformað var að friðlýsa samkvæmt náttúruverndaráætlun 2004-2008 og liggur innan og út af lögsagnarumdæmi Garðabæjar hefur nú verið friðlýstur.
Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofnunar.
Meira
6. október 2009, 10:39 - Nokkrar tilkynningar um hafís hafa borist Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar/ Vaktstöð siglinga síðastliðna sólarhringa. Nokkrir ísjakar hafa sést við Vestfirði, nánar tiltekið frá norð-austanverðu Horni allt að minni Önundarfjarðar.
Meira
5. október 2009, 09:28 - Síðustu daga hafa óvenju stór olíuskip átt leið um íslensku efnahagslögsuguna á siglingu frá Rússlandi til Bandaríkjanna.
Skipin eru Atlas Voyager og Nevskiy Prospect, bæði um 62.000 brúttótonn, 249 metrar að lengd og með yfir 100.000 tonn af hráolíu innanborðs.
Meira