10. mars 2010, 20:46 - Jón Karl Ólafsson, forstjóri Prima Air og fyrrv. forstjóri Icelandair Group, mun skipa 12. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Viðskiptablaðið greindi frá því fyrir tveimur vikum að Jón Karl hygðist taka sæti á lista flokksins. Haldi flokkurinn sama fylgi í kosningunum og hann hefur nú mun Jón Karl þannig verða varaborgarfulltrúi
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, mun skipa fyrsta sæti listans og Júlíus Vífill Ingvarsson annað sæti. Röðum frambjóðenda er óbreytt í 11 efstu sætum miðað við nýliðið prófkjör flokksins.
Meira
8. mars 2010, 16:24 - Sigurður Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Capacent Fyrirtækjaráðgjafar, áður Capacent Glacier. Hann hefur starfað hjá Capacent við rekstrar- og fjármálaráðgjöf frá árinu 2001. Hann tekur við starfinu af Magnúsi Bjarnasyni, sem hefur hafið störf hjá Landsvirkjun.
Meira
8. mars 2010, 12:11 - Magnús Bjarnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunar Landsvirkjunar. Um er að ræða nýtt svið hjá Landsvirkjun en hlutverk sviðsins verður að leggja aukna áherslu á markaðsmál hjá fyrirtækinu og hámarka framtíðartekjur þess.
Meira
8. mars 2010, 12:04 - Anna Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu, hefur tekið til starfa sem alþjóðafulltrúi í forsætisráðuneytinu. Hún tekur við störfum af Sturlu Sigurjónssyni sem hefur flust til starfa sem sendiherra í Kaupmannahöfn.
Meira
5. mars 2010, 15:55 - Þorgeir Pálsson forstjóri Flugstoða tekur við stöðu prófessors í flugleiðsögutækni við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, þegar hann lætur af starfi forstjóra Flugstoða í lok apríl. Hann verður jafnframt starfsmaður Flug-Kef ohf.
Meira
5. mars 2010, 13:29 - Iðnaðarráðherra hefur skipað nýja stjórn Tækniþróunarsjóðs. Fulltrúi ráðherra í stjórninni er Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP og er hann stjórnarformaður.
Tækniþróunarsjóður heyrir undir iðnaðarráðherra og hefur starfað frá árinu 2004.
Meira
5. mars 2010, 09:34 - Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi voru veitt í fyrsta sinn fimmtudaginn 4. mars að viðstöddum Forseta Íslands.
Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á framúrskarandi starfi hins almenna stjórnenda og hvetja hann til áframhaldandi faglegra vinnubragða og árangurs á öllum sviðum stjórnunar og rekstrar að...
Meira
4. mars 2010, 11:20 - Helgi Magnússon endurkjörinn formaður Samtaka iðnaðarins á fundi sem hófst í morgun. Vilborg Einarsdóttir, Sigsteinn P. Grétarssson og Bolli Árnason eru nýir stjórnarmenn Samtaka iðnaðarins.
Meira
2. mars 2010, 12:09 - Ragna Sara Jónsdóttir hefur verið ráðin yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar. Ragna er MSc í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Business School og BA í mannfræði frá Háskóla Íslands.
Meira
1. mars 2010, 13:58 - Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur skipað Lilju Ólafsdóttur héraðsdómslögmann formann stjórnar Fjármálaeftirlitsins (FME), í stað Dr. Gunnars Haraldssonar hagfræðings. Gunnar óskaði lausnar frá störfum stjórnarformanns 15.
Meira
26. febrúar 2010, 16:00 - Engin breyting verður á stjórn Marel á aðalfundi félagsins í næstu viku. Framboðsfrestur er nú útrunninn en samkvæmt framboðsyfirlýsingu munu allir stjórnarmeðlimir halda áfram.
Árni Oddur Þórðarson er nú stjórnarformaður en stjórnina skipa sex manns.
Meira
26. febrúar 2010, 14:57 - Stjórn danska bankans FIH, sem er í eigu skilanefndar Kaupþings, hefur lagt til að Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndarinnar, verði kjörinn í stjórn bankans. Þetta kemur í tilkynningu FIH um mál sem lögð verða fyrir væntanlegan aðalfund bankans. Hann verður haldinn 9. mars næstkomandi.
Meira
25. febrúar 2010, 11:25 - Gróa Ásgeirsdóttir, verkefnisstjóri hjá Flugfélagi Íslands, var kjörin nýr formaður FSH á aðalfundi samtakanna sem haldinn var í Salnum í Kópavogi í gær.
Meira
25. febrúar 2010, 08:19 - Aðalheiður Jónsdóttir hefur tekið við stöðu kynningarstjóra Rannís. Hún tekur við starfinu af Páli Vilhjálmssyni sem nú starfar sem kennari við Fjölbraut í Garðabæ auk þess sem hann sinnir störfum fyrir Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum.
Meira
24. febrúar 2010, 10:07 - Creditinfo hefur sett á fót nýtt stöðugildi umboðsmanns lántakenda. Er umboðsmanni ætlað að vinna að því að auka aðgengi fólks að upplýsingum um sig sjálft og kanna sjálfstætt hvers kyns ágreiningsmál.
Meira
19. febrúar 2010, 14:34 - Á aðalfundi Samorku, sem haldinn var í morgun, var Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, kjörinn nýr inn í stjórn samtakanna. Hörður kemur inn í stjórnina í stað Friðriks Sophussonar, forvera síns hjá Landsvirkjun. Franz Árnason var endurkjörinn formaður til tveggja ára á aðalfundi Samorku 20.
Meira
19. febrúar 2010, 13:40 - Hannes Frímann Hrólfsson og Frosti Reyr Rúnarsson, fyrrverandi yfirmenn í Kaupþingi, hafa fengið leyfi Fjármálaeftirlitsins til að reka Tinda verðbréf hf.
Frosti Reyr var forstöðumaður verðbréfamiðlunar Kaupþings en Hannes Frímann gegndi stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra fjárstýringar og...
Meira
18. febrúar 2010, 16:26 - Bankasýsla ríkisins hefur skipað þau Gunnar Helga Hálfdanarson, Guðríði Ólafsdóttur, Hauk Halldórsson og Sigríði Hrólfsdóttur sem aðalmenn í bankaráð Landsbanka Íslands (NBI hf.). Gunnar Helgi verður stjórnarformaður bankans.
Meira
18. febrúar 2010, 16:25 - Á aðalfundi Viðskiptaráðs sem fram fór í gær, 17. febrúar, voru kynnt úrslit kosningar til stjórnar ráðsins fyrir tímabilið 2010-2012.
Tómas Már Sigurðsson forstjóri Alcoa Fjarðaráls var kjörinn formaður ráðsins, en hann hefur gengt stöðu formanns frá október 2009 eftir að...
Meira
18. febrúar 2010, 12:22 - Stefán Friðriksson aðstoðarframkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum hefur sagt upp störfum og hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja hf.
Meira
18. febrúar 2010, 11:39 - Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskólann í Garðabæ rann út mánudaginn 15. febrúar sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust tíu umsóknir um stöðuna, frá tveim konum og 8 körlum.
Meira
16. febrúar 2010, 15:31 - Aðalsteinn E. Jónasson hefur gengið til liðs við LEX sem lögmaður og meðeigandi með fjármála- og félagarétt að sérsviði.
Tilkoma Aðalsteins styrkir sérhæfða þjónustu LEX á sviði banka-, fjármála og félagaréttar en á stofunni eru þegar nokkrir sérfræðingar...
Meira
15. febrúar 2010, 14:28 - Samfok, samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, hafa ráðið nýjan framkvæmdastjóra til starfa. Bryndís Jónsdóttir tekur við starfinu af Guðrúnu Valdimarsdóttur sem sagði starfi sínu lausu þegar hún tók sæti á lista fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Meira
11. febrúar 2010, 15:00 - Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP er nýr formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja (SUT) og tekur við af Þórólfi Árnasyni.
Frá þessu er greint á vef Samtaka iðnaðarins en Samtök upplýsingatæknifyrirtækja eru starfrækt undir Samtökum iðnaðarins.
Meira
11. febrúar 2010, 09:09 - Helgi Anton Eiríksson hefur verið ráðinn forstjóri Iceland Seafood International og Benedikt Sveinsson, fyrrum forstjóri, hefur tekið við stöðu stjórnarformanns félagsins. Þá hefur verið gengið formlega frá kaupum International Seafood Holdings á meirihluta í Iceland Seafood International.
Meira
8. febrúar 2010, 23:25 - Katrín Júlíusdóttir, iðnaðrráðherra og ráðherra ferðamála, hefur skipað í ferðamálaráð til fjögurra ára. Formaður ferðamálaráðs er sem fyrr Svahildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar.
Meira
8. febrúar 2010, 21:02 - Tíu umsækjendur eru um embætti forstjóra Útlendingastofnunar, sem auglýst var laust til umsóknar 15. janúar síðastliðinn.
Þetta kemur fram á vef dómsmálaráðuneytisins en Hildur Dungal, núverandi forstjóri hefur beðist lausnar frá embættinu.
Meira
3. febrúar 2010, 18:48 - Ólafur Þór Jóhannesson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Miðengis ehf., eignaumsýslufélags Íslandsbanka, frá og með 1. febrúar 2010. Ólafur Þór er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og löggiltur endurskoðandi.
Meira
2. febrúar 2010, 14:26 - Gísli H. Guðjónsson, réttarsálfræðingur og rannsóknarprófessor við kennslufræði- og lýðheilsudeild Háskólans í Reykjavík (HR), hefur verið sæmdur heiðursverðlaunum breska sálfræðifélagsins (The British Psychological Society) fyrir ævistarf sitt og framlag til sálfræðinnar.
Meira
1. febrúar 2010, 16:52 - Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Ísland, hefur tekið við formennsku í stjórn Skipta hf. af Lýð Guðmundssyni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skiptum til Kauphallarinnar en þessi ákvörðun var tekin á fundi stjórnar Skipta fyrr í dag.
Meira