Senda á Facebook Prenta frétt Senda frétt
Innlent - 18. mars 2009, 14:10

Vorum líklega með stærstu kauphöll í heimi – nú þá minnstu

- Forstjóri Kauphallarinnar segir bjartsýnn á bata – segir kauptækifæri myndast fljótlega

 
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar.
Mynd: VB MYND/HARI

Um mitt ár 2007 var markaðsvirði skráðra fyrirtækja í Kauphöllinni um 300% af landsframleiðslu Íslands en um þessar mundir er markaðsvirði þeirra um 20%. Meðaltal síðustu ára hefur verið um 150%.

Þetta kom fram í máli Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Kauphallarinnar á hádegisfundi í Háskóla Reykjavíkur í dag.

„Við vorum líklega hlutfallslega stærsta kauphöll í heimi á þessu tíma,“ sagði Þórður en bætti við að nú væri Kauphöllin líklega sú minnsta í heimi.

Þórður sagðist bjartsýnn á bata í hagkerfinu. Batinn myndi að öllum líkindum byrja í Bandaríkjunum á síðari hluta þessa árs og í Evrópu í byrjun næsta árs. Hins vegar væri mikilvægt fyrir viðeigandi aðila að bregðast rétt við breyttum aðstæðum.

Þannig væri öflugur hlutabréfamarkaður forsenda unduruppbyggingu en Þórður sagði ekkert þróað ríki væri án kauphallar og því mikilvægt að hér á landi yrði starfhæf kauphöll sem héldi utan um markaðinn.

Þórður minnti á að á árunum 1996 – 2010 yrði meðalhagvöxtur á Íslandi um 3,1% - og þá er búið að reikna með samdrættinum í ár með. Á sama tíma væri meðalhagvöxtur í Bandaríkjunum 2,7% og meðal evruríkja um 2,4%.


 
 
Viðskiptablaðið · Myllusetur ehf · Fiskislóð 22 · 101 Reykjavík · Sími: 511-6622 · vb@vb.is · askrift@vb.is · RSS