Senda á Facebook Prenta frétt Senda frétt
Innlent - 22. október 2009, 11:10

MMR: Dómstólarnir njóta meira trausts en ađrar stođir hins ţrískipta ríkisvalds

- ţó einungis ţriđjungur sem segist treysta dómskerfinu í heild

 

Tæpur helmingur svarenda (46,6%) í könnun MMR á trausti almennings til dómskerfisins og ráðuneytis dómsmála segjast bera mikið traust til Hæstaréttar, 42,3% segjast bera mikið traust til dómsmálaráðuneytisins og 40,3% segjast bera mikið traust til héraðsdómstólanna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá MMR en á móti segist tæpur fjórðungur svarenda bera lítið traust til þessara stofnana.

Þegar spurt var um dómskerfið í heild voru 36,5% sem kváðust bera mikið traust til þess sem er nánast sami fjöldi og segist bera lítið traust til dómskerfisins, eða 34%.

Dómsvaldið mælist þannig njóta mikils trausts meðal töluvert fleiri en aðrar stoðir hins þrískipta ríkisvalds sem mældar voru í samskonar könnun MMR í september síðastliðnum. Þar reyndist ríkisstjórnin (framkvæmdavaldið) njóta mikils trausts meðal 21,9% svarenda og Alþingi (löggjafavaldið) naut mikils trausts meðal 18% svarenda.

Á móti voru 54,8% sögðust bera lítið traust til ríkisstjórnarinnar og 52,4% sem sögðust bera lítið traust til Alþingis. 

Sjá könnunina í heild sinni HÉR.


 
 
Viđskiptablađiđ ˇ Myllusetur ehf ˇ Fiskislóđ 22 ˇ 101 Reykjavík ˇ Sími: 511-6622 ˇ vb@vb.is ˇ askrift@vb.is ˇ RSS