Senda á Facebook Prenta frétt Senda frétt
Erlent - 8. febrúar 2010, 17:16

Evrópuţjóđir lćkka virđisaukaskatt á veitingar og gistingu

 
Fiskmarkađurinn
Fiskmarkađurinn
Mynd: VB MYND

Miklar lækkanir eru nú að taka gildi á virðisaukaskatti í Evrópu.  Þjóðverjar lækkuðu virðisaukaskatt á gistingu úr 19% í 7% um síðustu áramót, Finnar lækka vask á veitingar úr 22% í 13% næsta sumar- bæði mat og áfenga drykki. 

Belgar lækkuðu nýlega vsk á veitingarekstur úr 21% í 12% og búist við að hann lækki í 6% á næsta ári. 

Sumarið 2009 lækkuðu Frakkar virðisaukaskatt á veitingar úr 19.6% í 5.5%.

Þetta kemur fram í fréttabréfi Samtaka verslunar og þjónustu. Ástæða þessara lækkana er að í í efnahagsþrengingum er stefnt að því að fjölga störfum, auka veltu og minnka svarta atvinnustarfsemi.


 
 
Viđskiptablađiđ · Myllusetur ehf · Fiskislóđ 22 · 101 Reykjavík · Sími: 511-6622 · vb@vb.is · askrift@vb.is · RSS