Senda á Facebook Prenta frétt Senda frétt
Innlent - 9. febrúar 2010, 13:03

Eldsneytisverð í hæstu hæðum á Íslandi þrátt fyrir lækkun erlendis

- ástæðan rakin til hækkunar á gengi dollars og aukinnar skattheimtu hérlendis

 
Bensín
Bensín
Mynd: VB MYND/HARI

Eldsneytisverð á Íslandi er nú í hæstu hæðum þrátt fyrir töluverða lækkun á olíuverði á heimsmarkaði að undanförnu. Er algengt sjálfsafgreiðsluverð á 95 oktana bensíni frá 196 til 199 krónum lítrinn og frá tæpum 196 til 197 krónum lítrinn á dísilolíunni. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur aftur á móti lækkað verulega eftir að hafa farið í um 80 dollara fyrir skömmu. Er verð hjá Brent í London nú rúmir 70 dollarar á tunnu og um 72 dollarar hjá WTI í New York. Reyndar hefur verðið verið aðeins verið að hækka síðustu klukkustundirnar.
 
Skýringin á hækkunum á eldsneytisverði hérlendis virðist einkum vera tvíþætt. Það er annars vegar vegna hækkunar opinberra gjalda á eldsneytisverð hérlendis og síðan umtalsverð hækkun á gengi dollars gagnvart krónu. Þannig var dollarinn skráður hjá Seðlabanka þann 1. desember 2009 á tæpar 122 krónur, en er nú á 129 krónur. Evran hefur aftur á móti lækkað á sama tíma gagnvart krónu úr 184 krónum í 176 krónur.
 


 
 
Viðskiptablaðið · Myllusetur ehf · Fiskislóð 22 · 101 Reykjavík · Sími: 511-6622 · vb@vb.is · askrift@vb.is · RSS