Senda á Facebook Prenta frétt Senda frétt
Innlent - 9. mars 2010, 17:13

Sveitarfélög upplýsi ráđuneyti ársfjórđungslega um fjárhagsstöđu

 
Kristján L. Möller samgöngu- og sveitastjórnaráđherra.
Kristján L. Möller samgöngu- og sveitastjórnaráđherra.
Mynd: VB MYND/HARI

Kristján Möller, ráðherra samgöngu- og sveitastjórnamála, hefur lagt fram frumvarp á Alþingi sem á að tryggja nauðsynlegar heimildir til  að afla ársfjórðungslega fjármálaupplýsinga frá sveitarfélögum. Einnig á með frumvarpinu að tryggja betra og markvissara aðgengi eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga að upplýsingum úr bókhaldi og reikningsskilum sveitarfélaga.

„Áhrif fjármálakreppunnar á sveitarfélögin koma fram með margvíslegum hætti. Í fyrsta lagi hafa tekjur dregist saman. Í öðru lagi hafa félagsleg útgjöld sveitarfélaga aukist, m.a. vegna aukins atvinnuleysis og versnandi stöðu heimilanna. Sveitarfélögin hafa lagt áherslu á að verja grunnþjónustuna í þeim hagræðingaraðgerðum sem gripið hefur verið til. Þá hafa lánakjör versnað og aðgangur að lánsfé, hvort heldur er til skuldbreytinga eða töku nýrra lána, takmarkast. Að lokum hafa skuldir sveitarfélaganna aukist verulega frá árinu 2007 með tilheyrandi aukningu fjármagnskostnaðar. Kemur þar bæði til hið skarpa gengisfall krónunnar með tilheyrandi áhrifum á erlendar skuldir sveitarfélaga og mikil verðbólga," segir í skýringum með frumvarpinu.


 
 
Viđskiptablađiđ ˇ Myllusetur ehf ˇ Fiskislóđ 22 ˇ 101 Reykjavík ˇ Sími: 511-6622 ˇ vb@vb.is ˇ askrift@vb.is ˇ RSS