Stjórnarformaður Össurar,
Daninn Niels Jacobsen, gagnrýndi
ný lög um yfirtökuskyldu
á aðalfundi Össurar sem fram
fór fyrr í vikunni. Jacobsen,
sem stýrir stjórninni í umboði
stærsta hluthafans, William
Demant Holding þar sem hann er
forstóri, sagði ný lög geta skapað
vandamál þar sem hlutur félagsins
er yfir 30 prósenta hámarkinu
sem nú hefur verið lögfest en
það var 40% áður.
Hlutur William
Demant er nú 37,3 prósent. Félög sem skráð eru í Kauphöll
Íslands hafa tíma fram til áramóta 2011/2012 til þess að laga sig
að breyttum lögum. Össur er tvískráð en það er einnig hluti af
dönsku kauphöllinni.