EFLA verkfræðistofa og Reitir fasteignafélag hafa skrifað undir samning
um leigu á 3.800 fermetra húsnæði í nýjum skrifstofugörðum
Reita að Höfðabakka 9. Viðar Þorkelsson, forstjóri Reita, segir að þetta
styrki verulega starfsemina að Höfðabakka. Þar sé verið að standsetja
25 þúsund fermetra skrifstofugarða, sem sé þróunarverkefni Reita. Til
hliðsjónar eru höfð sjónarmið um vistvæna byggð.
EFLA sem er eitt stærsta ráðgjafarfyrirtæki landsins er nú með aðstöðu
á fjórum stöðum í Reykjavík en mun sameina þær í eina starfsstöð
í húsnæðinu að Höfðabakka. Nýju höfuðstöðvarnar munu hýsa um
160 starfsmenn en alls starfa um 220 manns hjá EFLU, meðal annars í
Reykjanesbæ, á Selfossi, Reyðarfirði og Akureyri.
„Það hefur staðið til í nokkurn tíma að sameina starfsstöðvarnar í
Reykjavík. Möguleikarnir sem okkur buðust
í skrifstofugörðunum að Höfðabakka
gerðu okkur kleift að sameina starfsstöðvarnar
á hagkvæman og mjög svo
hentugan máta,“ er haft eftir Guðmundi
Þorbjörnssyni, framkvæmdastjóra EFLU
í tilkynningu. Hann segir að reksturinn
muni eflast í nýju sérhönnuðu húsnæði.
Síðast var Háskólinn í Reykjavík til húsa
þar sem EFLA verður. Marel hafði sína
fyrstu starfsstöð í þessu húsnæði. Viðar
segir við hæfi að einn stærsti leigjandinn
á þessu svæði verði verkfræðistofa.