Þrotabú Spron: Lýstar kröfur 100 milljörðum meiri en eignir
Eignir þrotabús Spron eru um 150 milljarðar króna að teknu tilliti til niðurfærslna. Lýstar kröfur í búið eru 250 milljarðar króna og hefur slitastjórn þegar tekið afstöðu til um 95% þeirra. Samþykktar kröfur erlendra kröfuhafa eru rúmlega 86 milljarðar króna eða 70% af heildarfjárhæð samþykktra krafna.
Kröfuhafafundur Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf. ( Spron) var haldinn í dag. Á fundinum gerði slitastjórn grein fyrir slitaferlinu, stöðu eigna og skulda, starfsemi í dag, afstöðu til krafna og væntum endurheimtum. Stofnuð hefur verið kröfuhafanefnd erlendra kröfuhafa sem mun funda reglulega með slitastjórn. Kostnaður við slitameðferð er 0,4% af bókfærðu virði eigna og 0,8% af eignum í stýringu. Endurheimtur til almennra kröfuhafa eru áætlaðar á bilinu 10-12%. Útlit er fyrir að slitaferlið geti tekið um fjögur til fimm ár segir í tilkynningu.
Borga Arion banka milljarð á mánuði
Stærsti kostnaðarliður búsins er vaxtaskuldbinding gagnvart Arion banka hf. sem Fjármálaeftirlitið hefur úrskurðað um. Samkvæmt úrskurðinum eru vextirnir tæplega milljarður króna á mánuði sem að mati slitastjórnar er verulega umfram áhættu og kostnað Arion banka hf. af yfirtöku innlána Spron. Slitastjórn hefur farið fram á endurskoðun þessarar ákvörðunar við Fjármálaeftirlitið. Fáist ekki ásættanleg niðurstaða útilokar slitastjórn ekki málssókn vegna þessa. Slitastjórn gerði grein fyrir rannsókn á innri starfsemi Spron í aðdraganda yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á sparisjóðnum. Sú rannsókn bendir til þess að framundan geti m.a. verið málsóknir vegna riftunar- og skaðabótamála.