Samdráttur í verslun í febrúar
Í febrúar síðastliðnum var raunsamdráttur í verslun hér á landi í samanburði við sama mánuð í fyrra samkvæmt upplýsingum frá rannsóknarsetri verslunarinnar. Það var aðeins í raftækjaverslun sem salan jókst um 2% frá fyrra ári, en var samt 52% minni en fyrir tveimur árum. Húsgagnaverslun hefur minnkað um 62% á síðustu tveimur árum, fataverslun um 27,7%, dagvöruverslun um 14,7% og áfengisverslun um 27,3%. Í öllum tilvikum er um raunveltu að ræða.
Undanfarna mánuði hefur heldur dregið úr þeim samdrætti sem varð í dagvöruverslun strax eftir hrun bankanna í lok 2008. Þá hefur innflutningur á matar- og drykkjarvörum aukist lítillega samkvæmt upplýsingum um vöruinnflutning hjá Hagstofu Íslands, mælt á föstu gengi. Þannig var innflutningur á matar- og drykkjarvöru 0,8% meiri í janúar síðastliðnum en í janúar 2009.
Dregið hefur úr verðhækkunum á matvörum og eru þær mun minni en í öðrum vöruflokkum. Í janúar hafði verð á matar- og drykkjarvöru aukist um 5,8% frá sama mánuði árið áður. Til samanburðar má geta þess að verð á þessum sömu vörum lækkaði um 1,2% að jafnaði á hinum Norðurlöndunum og um 0,6% að meðaltali innan ESB. Þessar upplýsingar má finna í samræmdri vísitölu neysluverðs sem Hagstofan birtir.