Ekki skýrt frá nýjum hluthöfum strax
Auka þarf hlutafé hjá 365 um einn milljarð króna fyrir 1. apríl
Innlent
13. mars 2010 kl. 17:58
Ari Edwald, forstjóri 365.
"Við erum búnir að ganga því máli öllu [hlutafjáraukningunni innsk. blm.], eins og við höfum greint frá áður. Við munum ekki skýra nánar frá því fyrr en þar að kemur," segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, sem m.a. á Fréttablaðið, Stöð 2 og Bylgjuna. Auka þarf hlutafé í félaginu um einn milljarð króna fyrir 1. apríl næst komandi samkvæmt skilmálum frá Landsbankanum sem tilgreindir eru í ársreikningi félagsins. Ef hlutaféð verður ekki aukið um milljarð fyrir 1. apríl gjaldfellur skuld upp á 4,3 milljarða króna á félagið, skv skilmálunum.
Ari segir ekki tímabært að greina frá því hverjir það eru sem samþykkt hafa að verða hluthafar í félaginu. Jón Ásgeir Jóhannesson á meirihluta í 365 eins og mál standa nú.