Fréttaskýring: Kínverjar halda áfram að kaupa bandarísk skuldabréf ? kaupa bréf á hverjum degi
Kínversk stjórnvöld horfa fram hjá öllum pólitískum umræðum um möguleg völd þeirra í efnahagskerfi Bandaríkjanna og halda áfram að kaupa bandarísk skuldabréf á hverjum degi, að því er fram kemur í fréttaskýringu Financial Times (FT).
Sem kunnugt hafa kínversk stjórnvöld átt verulegt magn af skuldabréfum útgefnum af bandaríska ríkinu síðustu ár. Talið er að Kínverjar eigi nú um 2.400 milljarða dala skuldabréfasafn á bandaríska ríkið. Upphæðin er þó ágiskun Financial Times og byggir á mati sérfræðinga en kínversk stjórnvöld gefa sjálf ekkert upp um stöðuna.
„Fjárfestingar Kínverja í bandarískum skuldabréfum eru viðskiptalegs eðlis og við höfum engan áhuga á að búa til pólitík úr þeim viðskiptum,“ hefur Financial Times eftir Yi Gang, yfirmanni alþjóðaviðskipta í Kína (e. State Administration of Foreign Exchange).
„Við erum ábyrgir fjárfestar og þessar fjárfestingar munu gagnast báðum aðilum.“
Sem fyrr segir eru Kínverjar stærstu eigendur bandarískra skuldabréfa. Ríkin tvö hafa þó lengi deilt, þó sú deila hafi aðeins farið fram á pólitískum vettvangi, um gengi gjaldmiðla hvors annars. Þannig hafa Bandaríkjamenn sakað Kínverja um að halda gengi kínverska júansins of sterku gagnvart Bandaríkjadal. Að sama skapi hafa Kínverjar sakað Bandaríkjamenn um að fella óbeint gengi dollarans með slæmum stjórnvaldsaðgerðum, t.d. björgun bankanna og aukinni peningaprentun.
Talið er að Kínverjar hafi í byrjun árs losað sig við talsvert magn skuldabréfa og með því hækkað ávöxtunarkröfuna á bréfunum og fellt gengi þeirra. Mun það vera leið Kínverja til að sýna óánægju sína með stefnumótun bandaríkjastjórnar í efnahagsmálum sem, aftur, hafa leitt til lækkandi gengis dollarans.
Hins vegar lítur allt út fyrir að aðgerðir Kínverja hafi verið meira til að slá á höndina á Bandaríkjamönnum en að refsa þeim til langs tíma. Viðmælendur Financial Times telja að ef Kínverjar hefðu haldið áfram að losa sig við bréf hefði það leitt til þess að fleiri færu að losa bréfin sín, gjarnan talað um að „dömpa“ bréfunum, sem hefði gert þau verðlaus um tíma. Þá sé það jafnframt pólitísk stefna í Kína, þó hún sé ekki opinber, að eiga stóra skuldabréfastöðu gegn Bandaríkjunum en þannig hafa Kínverjar alltaf ákveðin ítök í bandarísku efnahagslífi og geta beitt sér með einum eða öðrum hætti ef á þarf að halda. Þess vegna kaupa þeir skuldabréf „á hverjum degi“ eins og það er orðað í fréttaskýringu Financial Times.