Norðmenn rúmlega hálfnaðir með loðnukvótann í Barentshafi
Fiskifréttir
8. mars 2010 kl. 15:00
Norskt loðnuskip í íslenskri höfn. (Mynd: Óðinn Magnason).
Loðnuveiðar Norðmanna í Barentshafi eru vel á veg komnar en veiðin hefur þó verið misjöfn. Í lok síðustu viku höfðu þeir veitt ríflega helming kvóta síns.
Í nýliðinni viku veiddust alls tæp 55 þúsund tonn, þar af var um 21 þúsund tonni landað til mjöl- og lýsisvinnslu. Veiðarnar fara aðalleg fram norður af Fruholmen.
Á þriðjudaginn stöðvaði landvinnslan kaup á loðnu en strax daginn eftir hófst móttaka á loðnu á ný. Í lok vikunnar var hrognahlutfallið komið í 19% en það var þó mjög breytilegt eftir förmum.
Heimild: Norges sildesalgslag