Steinar Þór Guðgeirsson á leið í stjórn FIH
Tillaga þess efnis verður lögð fram á aðalfundi þann 9. mars. Skilanefnd Kaupþings á FIH.
Stjórn danska bankans FIH, sem er í eigu skilanefndar Kaupþings, hefur lagt til að Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndarinnar, verði kjörinn í stjórn bankans. Þetta kemur í tilkynningu FIH um mál sem lögð verða fyrir væntanlegan aðalfund bankans. Hann verður haldinn 9. mars næstkomandi. Verði tillagan samþykkt mun Steinar Þór taka sæti í stjórn FIH að honum loknum.
FIH var settur að veði fyrir láni frá Seðlabankanum
Öll hlutabréf FIH-bankans voru sett að veði fyrir 500 milljóna evra, um 87 milljarðar króna á núvirði, láni Seðlabanka Íslands til Kaupþings skömmu áður en að bankinn féll haustið 2008. Seðlabankinn hefur ekki gengið að veðunum og FIH er að öllu leyti í eigu skilanefndar Kaupþings.
Samkvæmt ársreikningi FIH, sem var birtur í byrjun febrúar, nema eignir bankans um 130 milljörðum danskra króna, eða rúmlega 3.000 milljörðum íslenskra króna. Heimildir Viðskiptablaðsins herma að skilanefnd Kaupþings telji því virði FIH mun meira en virði láns Seðlabankans og því myndi hún frekar greiða upp lánið ef gengið yrði að því en að afhenda veðin.