Höfrungar geta "slökkt á" sykursýki
Rannsóknir á höfrungum hafa leitt í ljós að erfðaefni úr þeim gæti hugsanlega komið að gagni við að finna rétta meðhöndlun við sykursýki tvö sem hrjáir mannfólkið í æ ríkari mæli, að því er fram kemur á vef BBC.
Bandarískir sjávarlíffræðingar hafa komist að því að ákveðin tegund höfrunga er ónæm fyrir insúlíni rétt eins og fólk sem er með sykursýki. Höfrungarnir hafa þó þá sérstöðu að þeir virðast hafa einskonar innbyggðan „rofa“ til að kveikja eða slökkva á þessu ónæmi að hentugleika.
Vonir standa til að samvinna geti tekist milli sjávarlíffræðinga og lækna um að leita leiða til að finna og hugsanlega stjórna „rofa“ hjá mönnum af þeim toga sem höfrungarnir virðast hafa.
Blóðsýni voru tekin úr tömdum höfrungum sem borða stöðugt allan daginn en eru matarlausir á nóttunni. Á nóttunni breytist efnasamsetning blóðsins sem er sambærileg við breytingar í blóði sykursjúkra manna. Þetta þýðir að insúlín, þ.e. hormónið sem minnkar glúkósa í blóðinu, hefur engin áhrif á höfrunga þegar þeir fasta. Um morguninn, þegar þeir fá sér morgunmatinn, svissa þeir einfaldlega yfir á ný. Hjá sykursjúkum mönnum þýðir ónæmi fyrir insúlíni hins vegar að þeir þurfa að fylgjast vandlega með glúkósa í blóðinu og grípa til viðeigandi ráðstafana til að komast hjá alvarlegum afleiðingum.
Sávardýr eins og höfrungar lifa á fæðu sem er prótínrík en kolvetnissnauð. Höfrungar eiga það sammerkt með manninum að þeir hafa stóran heila sem þarfnast sykurs. Þeir hafa því þróað aðferðir í aldanna rás til tryggja það að heilinn fái ávallt nóg af glúkósa. Önnur sjávardýr eins og selir hafa ekki þennan eiginleika enda státa þeir ekki af eins stórum heila og höfrungar og mannfólk. Hæfileiki höfrunga til að stjórna blóðsykrinum gæti því gagnast manninum.