Aldrei fleiri umsóknir um hreindýraveiðileyfi
Aldrei hafa fleiri sótt um hreindýraveiðileyfi en 3800 umsóknir hafa borist veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar. Umsóknarfresturinn rann út í gær.
Frá þessu er greint á vef Bændablaðsins. Jóhann G. Gunnarsson, starfsmaður veiðistjórnunarsviðs, bendir í samtali við Bændablaðið á að endanlegur fjöldi umsókna liggi þó ekki fyrir því póstlagðar umsóknir gætu átt eftir að berast og eins eigi eftir að sía úr ógildar umsóknir.
Í ár bárust um 500 fleiri umsóknir en í fyrra, sem þá var metfjöldi. Árið þar áður var einnig slegið met í fjölda umsókna en þá voru þær tæplega 3100.
Á veiðitímabilinu í ár, sem stendur frá 15. júlí til 20. september verður leyfilegt að veiða 1272 hreindýr svo ljóst er að færri komast að en vilja.
Verð veiðileyfa ná allt frá 50.000 krónum fyrir kú upp í 125.000 krónur fyrir tarf. Dregið verður úr gildum umsóknum á laugardag.