Obama nennir ekki að hitta leiðtoga ESB
Nokkurs pirrings gætir meðal forsvarsmanna Evrópusambandsins (ESB) eftir að greint var frá því að Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, myndi ekki mæta á sameiginlegan leiðtogafund ESB og Bandaríkjanna sem haldinn verður í Madrid á Spáni í maí nk. en Spánverjar fara nú með forsæti í ESB.
Til stóð að Obama mætti á leiðtogafundinn en nú hefur verið tilkynnt svo verði ekki. Hefur sú ákvörðun valdið nokkrum titringi innan stofnana ESB og hefur gagnrýnin í evrópskum fjölmiðlum helst snúið að Evrópusambandinu sjálfu.
Philip Gordon, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í samtali við Financial Times (FT) að stjórnvöld í Washington væru ákveðin í að eiga góð samskipti bæði við ESB og eins stjórnvöld á Spáni. Gordon sagði að Obama hefði ferðast meira um Evrópu á sínu fyrsta ári en nokkur annar forseti Bandaríkjanna.
Ákvörðun Obama hefur þó valdið miklum vonbrigðum bæði í Madrid og eins í Brussel.
Vonbrigði með fyrri fund
Í fréttaskýringu FT af málinu kemur fram að ekki sé litið á afboðun Obama þannig að hann sé að hunsa stjórnvöld á Spáni heldur séu í henni fólgin skilaboð um að Obama hafi ekki áhuga á að ferðast yfir Atlantshafið til þess eins að taka þátt í samstöðulausum fundi.
Aðrir breskir og spænskir fjölmiðlar hafa tekið undir þetta.
FT hefur eftir diplómat hjá ESB að Obama hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum með leiðtogafund ESB og Bandaríkjanna sem haldinn var í Prag í fyrra þar sem allir leiðtogar þeirra 27 ríkja sem mynda Evrópusambandið komu til fundar. Leiðtogar þeirra ríkja sem mynda ESB hafa þó reynt að gera sem minnst úr afboðun Obama.
Catherine Ashton, nýr utanríkisstjóri ESB, sagði í samtali við fjölmiðla að hún hefði vitað um ákvörðun Obama fyrir fram þar sem hún hefði rætt málið við Hilllary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Ashton sagði að Obama myndi hitta flesta þessara leiðtoga á fundi NATO-ríkja í Lissabon í nóvember nk. og hann hefði hitt flesta leiðtogana nýlega. Þá væri dagskrá hans heimafyrir mjög þétt.
Nánar er fjallað um málið í erlendri fréttaskýringu í Viðskiptablaðinu.