Fiskafli: Fjórðungs samdráttur í janúar
Heildarafli íslenskra skipa dróst saman um tæpan fjórðung í nýliðnum janúarmánuði miðað við sama mánuð í fyrra, fór úr 72.000 tonnum 55.000 tonn. Botnfiskaflinn minnkaði um 1.700 tonn og uppsjávaraflinn um 14.500 tonn milli ára.
Botnfiskaflinn nam 31.300 tonnum. Þar af nam þorskaflinn rúmum 17.400 tonnum, sem er aukning um 1.700 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam rúmum 5.400 tonnum sem er um 1.400 tonnum minni afli en í janúar 2009. Karfaaflinn dróst saman um 1.200 tonn samanborið við janúar 2009 og nam tæpum 2.400 tonnum. Um 2.700 tonn veiddust af ufsa sem er um 600 tonnum minni afli en í janúar 2009.
Afli uppsjávartegunda nam rúmum 22.000 tonnum sem er tæplega 14.500 tonnum minni afli en í janúar 2009. Samdrátt í uppsjávarafla má helst rekja til minni síldarafla en 6.400 tonn veiddust af síld í janúar samanborið við 18.500 tonna afla í janúar 2009. Kolmunnaafli nam 5.300 tonnum og dróst saman um 8.000 tonn frá fyrra ári. Afli gulldeplu nam 10.600 tonnum sem er aukning um tæp 5.700 tonn miðað við janúar 2009.
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum janúarmánuði, metinn á föstu verði, var 8,9% minni en í janúar 2009.
Nánar á vef Hagstofunnar, HÉR