Rússland: Rannsókn hafin á meintum hugbúnaðarþjófnaði LG Electronics
Rússneska lögreglan hefur hafið rannsókn á útibúi suður-kóreanska fyrirtækisins LG Electronics í Rússlandi á meintum hugbúnaðarþjófnaði fyrirtækisins. Er þetta fyrsta málið af þessum toga í landinu gegn erlendu stórfyrirtæki að sögn The Moscow Times. Lögreglan gerði húsleit hjá fyrirtækinu 30. nóvember 2009 en fyrst í gær sem tilkynnt um að rannsókn væri hafin.
Lagt var hald á 44 harðdiskdiska og 17 fartölvur í húsleitinni. Á þeim er sagður vera meintur ólöglegur hugbúnaður upp á um 65.000 dollara. Viðurlög við að nota ólöglegan hugbúnað í Rússlandi geta verið allt að 5 ára fangelsi eða 500.000 rúblna sekt.
Sjóræningjahugbúnaður er mjög útbreiddur í fyrirtækjum og á heimilum í Rússlandi samkvæmt frétt The Moscow Times. Rannsóknin á hendur LG Electronics er sögð tilkomin vegna gríðarlegs fjölda ábendinga. Talið er að málið geti orðið mjög umfangsmikið ef það teygi sig út fyrir veggi LG.
Í yfirlýsingu frá efnahagsmálaglæpadeild innanríkisráðuneytisins segir að þetta sé í fyrsta sinn sem rannsókn af þessu tagi sé hafin gagnvart erlendu fyrirtæki. Nafn fyrirtækisins er ekki tekið fram í yfirlýsingunni en The Moscow Times fékk staðfestingu í gegnum Business Software Alliance á að það væri LG Electronics. Business Software Alliance fór fram á það við lögregluna að málið yrði rannsakað eftir að samtökin höfðu fengið mikinn fjölda ábendinga um meintan hugbúnaðarþjófnað. Anna Petrova, lögfræðilegur sérfræðingur hjá samtökunum, segir að óskað hafi verið eftir því símleiðis að LG sýndi fram á að það hefði leyfi fyrir forritum sem það notaði. Þeirri fyrirspurn hafi ekki verið svarað. Segir hún að meðal meints ólöglegs hugbúnaðar séu grafísk forrit frá Adobe og Corel.
LG er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu sjónvarpstækja, farsíma, ryksuga og fjölda annarra raftækja. Fyrirtækið hefur staðfest að rannsóknarmenn frá lögreglunni hafi gert húsleit hjá fyrirtækinu í fyrra. LG neitar þó að hugbúnaður sem þar er notaður sé stolinn. Anna Fedotovskikh, talsmaður LG segir að leyfi séu fyrir öllum hugbúnaði sem fyrirtækið noti enda sé það samkvæmt stefnu fyrirtækisins.