Hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavíkurborg samþykkt
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavíkurborg á fundi sínum í dag með 14 greiddum atkvæðum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en hjólreiðaáætlunin ber yfirskriftina „Hjólaborgin Reykjavík“ og felur í sér heildarsýn og aðgerðaáætlun um hjólreiðar í Reykjavík.
Vinnuhópur skipaður fulltrúum meiri- og minnihluta borgarstjórnar vann að áætluninni og leiddi Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og samgönguráðs, störf hópsins.
Í tilkynningunni segir að ,arkmið áætlunarinnar er að gera hjólreiðar að betri valkosti fyrir borgarbúa og tryggja með þeim hætti að íbúar Reykjavíkur geti ferðast um borgina sína á þann hátt sem þeir kjósa. Forgangur hjólandi vegfarenda í borginni verður aukinn með ýmsum aðgerðum, t.a.m. er því velt upp að opna einstaka einstefnugötur fyrir hjólreiðum til að stytta vegalengdir. Slíkar lausnir miða að því að gera hjólreiðar að fullgildum og viðurkenndum samgöngumáta fyrir Reykvíkinga og aðra vegfarendur í borginni.
Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir fimmföldun hjólaleiða í Reykjavík á næstu fimm árum og tíföldun á næstu tíu árum. Áætlunin gerir ráð fyrir hraðbraut fyrir hjól milli Laugardals og miðborgar og brú yfir Elliðaárósa eingöngu fyrir gangandi og hjólandi svo fátt eitt sé nefnt.