Hvítabjörn í Þistilfirði ? verður felldur að öllu óbreyttu
Frá því hefur verið greint að hvítabjörn hafi gengið á land í Þistilfirði í dag.
Á vef Umhverfisstofnun kemur fram að stofnunin vinnur nú að viðbrögðum í samráði við lögreglu og önnur yfirvöld. Mat lögreglu á aðstæðum eru að nauðsynlegt sé að fella björninn við fyrsta tækifæri og tekur Umhverfisstofnun undir það.
Þá kemur fram að niðurstaða starfshóps um viðbrögð við landgöngu hvítabjarna sem skipuð var í kjölfar landgöngu tveggja hvítabjarna árið 2008 var fella beri hvítabirni sem ganga á land. Fyrir því eru þrenn meginrök, í fyrsta lagi öryggissjónarmið, í öðru lagi stofnstærðarrök og í þriðja lagi kostnaður við björgunaraðgerðir.
Til þess að reyna björgun þurfa að vera ákjósanlegar aðstæður, s.s. að fólki standi ekki hætta af, skyggni sé gott og tryggt sé að dýrið sleppi ekki út í vatn eða sjó. Aðstæður í Þistilfirði eru ekki ákjósanlegar til þess að reyna björgun.
Hvítabjörninn er þegar þetta er skrifað, kl. 15.45, ófundinn en eftir éljagang fyrr í dag misstu menn sjónar á honum. Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF SIF, var við eftirlitsflug norðaustan af landinu og hefur henni nú verið snúið í áttina að Þistilfirði til að taka þátt í leitinni en hún er búinn mjög fullkomnum leitarbúnaði.