Heimilt að veiða tæplega 1.300 hreindýr á næsta ári
Óheimilt að veiða kálfa á komandi veiðitímabili
Samkvæmt auglýsingunni verður heimilt að veiða allt að 1.272 hreindýr árið 2010 og skiptist kvótinn milli veiðisvæða.
Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofu en Umhverfisráðuneytið hefur að tillögu Umhverfisstofnunar ákvarðað hreindýraveiðikvóta ársins 2010 og tilhögun veiða. Auglýsing þess efnis mun birtast í Lögbirtingarblaðinu á næstu dögum og öðlast hún þá gildi.
Líkt og undanfarin ár er tarfaveiði heimil frá og með 15. júlí til og með 15. september en þó með þeim fyrirvara að fram til 1. ágúst séu tarfar ekki veiddir ef þeir eru í fylgd með kúm eða ef veiðar trufla kýr og kálfa í sumarhögum. Veiðitími á kúm verður lengdur um 5 daga en veiði á kúm er heimil frá og með 1. ágúst til og með 20. september.
Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa.
Þá kemur fram að ekki verður heimilað að veiða kálfa á komandi veiðitímabili og er það breyting frá eldri reglu þegar kálfa með felldum kúm átti að fella ef þess var kostur. Undanfarna vetur hafa verið lítil afföll af kálfum og má því telja lífslíkur móðurlausra kálfa þokkalega góðar.