Hafís við Hornbjarg hefur nánast náð landi
Í gæslu- og ískönnunarflugi Eirar, þyrlu Landhelgisgæslunnar á laugardag kom í ljós hafís við Hornbjarg sem nánast náði landi við Hornbjargsvita. Ísinn lá til austurs í áttina að Óðinsboða, talsverður rekís og spangir eru þó fært sé gegnum ísinn með aðgát.
Þetta kemur fram á vef Landhelgisgæslunnar en ísrönd var næst landi: 17,5 sjm. A af Horni. 12,5 sjm. N af Drangaskeri. 16 sjm. NNA af Þaralátursnesi. Einn stakur ísjaki sást í Húnaflóanum á stað : 66°12,7‘N – 21°16,3‘V.
Eitt skip fór í gegn um ísinn meðan flogið var yfir en Landhelgisgæslan varar sjófarendur við aðstæðum og mælir með að fylgst verði með sjávarhita á svæðinu. Talsverð þoka og lélegt skyggni var í fluginu og því ekki gott að gera nákvæma grein fyrir hversu langt ísinn dreifðist. Einnig sást ísinn mjög illa á radar þar sem úrkoman á svæðinu truflaði radarskilyrðin.
Sjá nánar á vef Landhelgisgæslunnar en þar eru einnig sýndar myndir og kort af staðsetningu íssins.