Senda á Facebook Prenta frétt Senda frétt
Fólk - 8. febrúar 2010, 21:02

Tíu umsćkjendur um embćtti forstjóra Útlendingastofnunar

 

Tíu umsækjendur eru um embætti forstjóra Útlendingastofnunar, sem auglýst var laust til umsóknar 15. janúar síðastliðinn.

Þetta kemur fram á vef dómsmálaráðuneytisins en Hildur Dungal, núverandi forstjóri hefur beðist lausnar frá embættinu.

Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn frá og með 1. apríl 2010. Umsóknarfrestur rann út 4. febrúar síðastliðinn.

Umsækjendur um embættið eru:

  • Einar Örn Thorlacius
  • Gísli Rúnar Gíslason
  • Halldór Frímannsson
  • Halldór Eiríkur S. Jónhildarson
  • Jónína Bjartmarz
  • Kristín Völundardóttir
  • Kristján Baldursson
  • Oddur Gunnarsson
  • Margrét Steinarsdóttir
  • Ragnheiður Ólöf Böðvarsdóttir

 
 
Viđskiptablađiđ ˇ Myllusetur ehf ˇ Fiskislóđ 22 ˇ 101 Reykjavík ˇ Sími: 511-6622 ˇ vb@vb.is ˇ askrift@vb.is ˇ RSS