Grænlendingar mega veiða 93 ísbirni
Umhverfismál
4. janúar 2010 kl. 12:00
Ísbjörn.
Grænlensk yfirvöld hafa tilkynnt að leyft verði að veiða samtals 93 bjarndýr í landinu á þessu ári, nánar tiltekið 43 dýr á Upernavik veiðisvæðinu í Vestur-Grænlandi og 50 dýr í Austur-Grænlandi.
Þá má veiða 70 rostunga í Qaanaaq í Norðvestur-Grænlandi og 23 rostunga í Sisimuit, sunnar við vesturströndina.
Greint er frá þessum á vef grænlenska útvarpsins og þess getið að kvótarnir séu hinir sömu og á nýliðnu ári. Stjórnvöld leggja áherslu á að um bráðabirgðaúthlutun sé að ræða. Kvótunum kunni að verða breytt eftir að vísindalegri úttekt á stofnunum sé lokið.