Agnarlítil marglitta nærri búin að drepa manninn í draumadjobbinu
sældarlíf á sólareyjunni Hamilton við Ástralíu breyttist í skelfingu
Bretinn Ben Southall, sem varð hlutskarpastur í hópi 34.000 umsækjenda um „draumadjobbið" í Ástralíu á árinu, var mjög hætt kominn í síðustu viku. Var hann þá að sinna hlutverki sínum varðandi eftirlit í sjónum við Hamilton eyju þegar hann var stunginn af baneitraðri marglittu sem er vart sýnileg berum augum og er á stærð við litla baun.
„Ég hef forðast að boxast við kengúrur, láta hákarla narta í mig og láta köngulær, eða snáka bíta mig. En á örfáu síðustu dögunum mínum á Hamilton eyju varð ég fyrir árás míni-marglittu sem kölluð er Irukandji," segir Ben Southall á bloggsíðu sinni.
Að sögn AP fréttastofunnar gerði marglittan gerði „árás" þegar Ben var að hægja ferðina á þotuskíði sínu (Jet-ski). Kvikindi þetta er vart sjáanlegt berum augum, lítið stærra en brennisteinn á eldspýtu.
Eftir að hafa fengið höfuðver, bakverk, brjóstverki og háan blóðþrýsting leitaði kappinn til læknis sem uppgötvaði hvers kyns var. Stunga slíkrar marglittu getur verið banvæn og lést ferðamaður t.d. eftir slíka stungu árið 2002. Sleppa þessi kvikindi auðveldlega í gegnum net sem oft eru strengd úti fyrir baðströndum í Ástralíu til að kom í veg fyrir ágang stærri marglitta. Það getur því greinilega verið varasamt að þiggja draumadjobb á þessum slóðum.