Bretland: Mýs yfirtóku "fínan" veitingastað - eigandinn sektaður
staðurinn fékk verðlaun fyrir að vera einn sá snyrtilegasti í Oldham árið 2003
Eigandi veitingastaðarins Prithi Raj á Featherstall Road North í Oldham í Englandi var sektaður nú fyrir jólin fyrir músgang. Hafði heilbrigðisfulltrúi komist að því að mýs höfðu nánast yfirtekið staðinn. Þá var heldur engin sápa eða handþvottaraðstaða fyrir starfsfólks staðarins.
Var eigandinn, Salikur Rahman, sektaður um 1.200 pund og þarf að greiða 1.800 pund vegna kostnaðar í sýslusjóð að auki að því er segir á vefsíðu Asian News.
Þótti saksóknara staðnum hafa hrakað illilega, en einkunnarorð staðarins eru; „a remarkable dining experience in the heart of Oldham." Var veitingastaðurinn eitt sinn talinn einn sá snyrtilegasti og heilsusamlegasti á svæðinu. Fékk hann m.a. ítrekað verðlaun á árinu 2003, bæði frá Oldham sýslu og svokölluð "Oldham Primary Care Trust's Heartbeat Award," sem veitt eru fyrirtækjum sem hafa lagt mikla vinnu í að bæta eldunaraðferðir til að framreiða heilsusamlegri mat í heilsusamlegu umhverfi.