Völusteinn ehf. tók yfir eignir Festar ehf. í Hafnarfirði nú um áramótin. Völusteinn gerir nú út fjóra smábáta og rekur fiskvinnslu í Hafnarfirði. Alls vinna um 60 manns hjá Völusteini. Reiknað er með því að velta fyrirtækisins verði einn milljarður króna á árinu, að því er fram kemur í nýjustu Fiskifréttum.
Völusteinn keypti eignir þrotabús Festar af Landsbankanum seint á síðasta ári. Um er að ræða um 1.650 þorskígildistonna aflaheimildir, 6 báta og fiskvinnslu í Hafnarfirði. Kaupverðið er um 3,2 milljarðar króna þannig að þorskígildiskílóið leggur sig á tæpar 2.000 krónur.
Aðaleigendur Völusteins eru Gunnar Torfason sjávarútvegsfræðingur og Ólafur Jens Daðason, skipstjóri á Hrólfi Einarssyni ÍS.
Gunnar Torfason sagði í samtali við Fiskifréttir að Völusteinn gerði nú út fjóra báta; þrjá báta sem Festi gerði áður út, Vilborg GK, Baddý GK og Hildi GK svo og Hrólf Einarsson ÍS sem Völusteinn keypti og hóf útgerð á vorið 2009. Allt eru þetta krókaaflamarksbátar um 15 brúttótonn að stærð. Gunnar sagði að þeir hefðu nú þegar selt tvo báta sem Festi gerði út, krókaaflamarksbátinn Önnu GK og dragnóta- og línubátinn Ásdísi GK (ex Brík BA). Þriðji báturinn er til sölumeðferðar, Hafdís GK, sem er beitningarvélabátur í aflamarkskerfinu.
Gunnar sagði að fiskvinnslan tæki á móti um 60 tonnum á viku og framleiddi um 6 tonn af afurðum á dag. Aðallega væri unninn ferskur fiskur í flug en lítilsháttar væri lausfryst.
Sjá nánar í nýjustu Fiskifréttum.