Senda á Facebook Prenta frétt Senda frétt
Fiskifréttir - 29. janúar 2010, 16:18

Loðnukvótinn gefur 10 milljarða í útflutningstekjur

 
Loðnukvótinn Íslendinga verður 90 þús. tonn, en var 15.000 tonn í fyrra. (Mynd: Hlynur Ársælsson).
Loðnukvótinn Íslendinga verður 90 þús. tonn, en var 15.000 tonn í fyrra. (Mynd: Hlynur Ársælsson).

Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hefur að tillögur Hafrannsóknastofnunar í dag ákveðið að heimila veiðar á 130.000 tonnum af loðnu, en þar af koma rúmar 90.000 þús. tonn í hlut íslenskra loðnuskipa samkvæmt ákvæðum samninga við önnur lönd um nýtingu loðnustofnsins við Ísland.

Gera má ráð fyrir að umrætt magn geti svarað til um 10 milljarða króna verðmæta í útflutningi að því er fram kemur í frétt frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Þar segir ennfremur að sjávarútvegsráðherra telji þetta mikil gleðitíðindi og leggi áherslu á að veiðum og fullvinnslu þessa afla verði hagað með þeim hætti, að sem mestur þjóðhagslegur ábati skapist af þessari auðlind.


 
 
Viðskiptablaðið · Myllusetur ehf · Fiskislóð 22 · 101 Reykjavík · Sími: 511-6622 · vb@vb.is · askrift@vb.is · RSS