Senda á Facebook Prenta frétt Senda frétt
Fiskifréttir - 1. febrúar 2010, 12:00

Smábátur setur Íslandsmet í mánaðarafla

 
Tryggvi Eðvarðs SH (Mynd: Alfons Finnsson).
Tryggvi Eðvarðs SH (Mynd: Alfons Finnsson).

Krókaaflamarksbáturinn Tryggvi Eðvarðs SH frá Rifi setti aflamet í nýliðnum janúarmánuði í flokki smábáta, en hann fiskaði 230 tonn. Þetta er mesti afli sem smábátur hefur lagt á land í einum mánuði til þessa. Báturinn rær með landbeitta línu.

Fyrra met átti Ragnar SF frá Hornafirði en hann veiddi 217 tonn í ágústmánuði á síðasta ári. Hann er beitningarvélabátur í krókaaflamarkskerfinu.

Aflaverðmæti Tryggva Eðvarðs SH nam 75 milljónum króna í mánuðinum en aflinn var allur seldur á fiskmarkaði. Þrír menn eru í áhöfn Tryggva Eðvarðs SH og skipstjóri er Arnar Laxdal Jóhannsson.

 ræ með landbeitta línu.


 
 
Viðskiptablaðið · Myllusetur ehf · Fiskislóð 22 · 101 Reykjavík · Sími: 511-6622 · vb@vb.is · askrift@vb.is · RSS