Senda á Facebook Prenta frétt Senda frétt
Fiskifréttir - 1. febrúar 2010, 15:00

Danskur sjávarútvegur: Tćpir 7 milljarđar í styrki 2010

 
Sjávarútvegur í Danmörk
Sjávarútvegur í Danmörk
Mynd: VB Mynd/Edwin

Í desember síðastliðnum var gengið frá samkomulagi um opinbera styrki í sjávarútvegi í Danmörku á árinu 2010.

Heildarupphæðin er tæpar 300 milljónir króna danskar (tæpir 7 milljarðar ísl. kr.) að meðtöldum styrkjum frá ESB. Styrkirnir skiptast á milli fiskveiða og vinnslu og fiskeldis.

Lögð verður áhersla á að styrkja sjálfbærar veiðar, auka rekjanleika og bæta gæði.

Þá verða settar 17 milljónir danskar í “grænt” fiskeldi sem notar háþróaða tækni til endurnýtingar við framleiðsluna.


 
 
Viđskiptablađiđ · Myllusetur ehf · Fiskislóđ 22 · 101 Reykjavík · Sími: 511-6622 · vb@vb.is · askrift@vb.is · RSS