Senda á Facebook Prenta frétt Senda frétt
Fiskifréttir - 2. febrúar 2010, 15:15

Loðnan finnst ekki við Noreg

- Fjöldi norskra loðnuskipa að veiðum við Ísland

 

Leit norskra skipa að loðnu í Barentshafi lýkur í dag án þess að loðnan hafi fundist í veiðanlegu magni, að því er fram kemur á vef norska sjávarútvegsráðuneytisins. Á sama tíma er fjöldi norskra loðnuskipa að veiðum í íslensku lögsögunni.

Leitin af loðnu í Barentshafi hefur staðið yfir frá 19. janúar og voru Norðmenn með tvö skip við leitina. Á vef ráðuneytisins kemur fram að loðnuskipum sé heimilt að halda leitinni áfram fyrir eigin reikning austan við 30°A.

Norski loðnuflotinn er nú kominn til loðnuveiða A- og SA af Íslandi eins og fram kom hér á vef Fiskifrétta fyrr í dag til að veiða þau 28 þúsund tonn sem norskum skipum var úthlutað hér.


 
 
Viðskiptablaðið · Myllusetur ehf · Fiskislóð 22 · 101 Reykjavík · Sími: 511-6622 · vb@vb.is · askrift@vb.is · RSS