Senda á Facebook Prenta frétt Senda frétt
Fiskifréttir - 3. febrúar 2010, 11:38

Tveir hnúfubakar merktir í Ísafjarðardjúpi

 
Hnúfubakur með gervihnattamerki.
Hnúfubakur með gervihnattamerki.

Þann 28. janúar voru merktir tveir hnúfubakar skammt innan við Æðey í Ísafjarðardjúpi. Upplýsingar hafa borist um ferðir annars þeirra, en sá synti út úr Ísafjarðardjúpi daginn eftir merkingu.

Þaðan hélt hvalurinn ákveðið til vesturs og inn í grænlenska lögsögu. 2. febrúar var hnúfubakurinn staddur um 460 km vestur af Snæfellsnesi, um 170 km frá strönd Grænlands.

Hægt er að fylgjast með ferðum hvalsins á vef Hafró,  HÉR.


 
 
Viðskiptablaðið · Myllusetur ehf · Fiskislóð 22 · 101 Reykjavík · Sími: 511-6622 · vb@vb.is · askrift@vb.is · RSS