Senda á Facebook Prenta frétt Senda frétt
Fiskifréttir - 3. febrúar 2010, 15:00

Bandaríkin: Markađur međ ýsu í jafnvćgi en búist viđ hćkkun

 
Ýsa
Ýsa
Mynd: VB MYND/BIG

Framboð á ferskri ýsu í norðaustanverðum Bandaríkjunum hefur verið nokkuð stöðugt. Það stafar af því að vel hefur viðrar til veiða á þessu svæði og ýsan hefur verið í þéttum torfum á Georgsbanka.

Hins vegar er búist við því að verð hækki þegar vetrarstormar fara að geisa og sóknardögum fækkar. Þá mun samdráttur í veiðum Kanadamanna leiða til minna framboðs af ýsu.

Verð fyrir stóra heila ýsu hefur verið stöðugt eða milli 1,65 og 1,75 dollarar á pundið sem samsvarar um 457-485 krónum íslenskum á kílóið.

Heimild: SeafoodSource


 
 
Viđskiptablađiđ ˇ Myllusetur ehf ˇ Fiskislóđ 22 ˇ 101 Reykjavík ˇ Sími: 511-6622 ˇ vb@vb.is ˇ askrift@vb.is ˇ RSS