Senda á Facebook Prenta frétt Senda frétt
Fiskifréttir - 4. febrúar 2010, 15:00

Kemur nýliđun skötusels ađ verulegu leyti frá Rockall svćđinu?

 
Skötuselur
Skötuselur

Skötuselsstofninn við Ísland hefur stækkað mikið vegna aukinnar nýliðunar. Að hve miklu leyti þessi nýliðun kemur frá hrygningarsvæðum vestan Bretlandseyja er ekki vitað en talið er að sum ár geti þau svæði skilað seiðum alla leið á íslenska landgrunnið.

Þetta kom meðal annars fram í erindi sem Jón Sólmundsson fiskifræðingur flutti síðastliðinn föstudag í málstofu Hafrannsóknastofnunar um áhrif umhverfisbreytinga á skötusel við Ísland.

Skötuselsstofninn hefur vaxið jafnt og þétt hér við land samfara hlýnun sjávar.

Skötuselurinn velur sér helst svæði þar sem sjávarhiti er yfir 4-5°C. Um 40% af hafsvæðinu við Ísland nær þessum hita að meðaltali í marsmánuði þegar sjórinn er hvað kaldastur. Flatarmál slíkra svæða í marsmánuði hefur nær tvöfaldast frá fyrstu árum togararallsins, þ.e. á árunum 1985-1990.

Samhliða því hefur straumakerfi breyst sem opnar leið fyrir suðlægari sjógerðir. Aukið streymi hlýsjávar hefur jákvæð áhrif á rek skötuselsseiða frá hafsvæðum vestan Bretlandseyja.

Sjá nánar ítarlega umfjöllun um skötuselinn í nýjustu Fiskifréttum.


 
 
Viđskiptablađiđ ˇ Myllusetur ehf ˇ Fiskislóđ 22 ˇ 101 Reykjavík ˇ Sími: 511-6622 ˇ vb@vb.is ˇ askrift@vb.is ˇ RSS