Senda á Facebook Prenta frétt Senda frétt
Fiskifréttir - 7. febrúar 2010, 20:22

Risasmokkur gerir innrás

 
Risasmokkfiskurinn viđ Kyrrahafsströnd Bandarikjanna
Risasmokkfiskurinn viđ Kyrrahafsströnd Bandarikjanna

Risasmokkfiskur, oft nefndur Humboldt smokkur, hefur í þúsundatali gengið upp að strönd Kaliforníu í Bandaríkunum að undanförnu. Smokkurinn er talinn veruleg ógn við sjávarútveg á þessum slóðum því hann leggst á nytjastofna eins og sardínu, ansjósu, lýsing og fleiri tegundir.

Heimamenn óttast að hækkun sjávarhita af völdum El Nino veðurfyrirbærisins í Kyrrahafi geti leitt til umfangsmikillar innrásar þessa kvikindis með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.


 
 
Viđskiptablađiđ ˇ Myllusetur ehf ˇ Fiskislóđ 22 ˇ 101 Reykjavík ˇ Sími: 511-6622 ˇ vb@vb.is ˇ askrift@vb.is ˇ RSS